Fara í efni
Fréttir

Andlát: Sigurður Hermannsson

Sigurður Hermannsson, tæknifræðingur og fyrrverandi umdæmisstjóri Isavia á Norðurlandi eystra, er látinn á 79. aldursári. Sigurður fæddist á Akureyri 16. ágúst 1945 og lést 28. apríl síðastliðinn.

Foreldrar Sigurðar voru Hermann Vilhjálmsson og Aðalbjörg Sigurðardóttir. Systkini hans eru Hjörtur, Svala, Stefán og Brynjar.

Eiginkona Sigurðar var Antonía Marsibil Lýðsdóttir. Hún lést árið 2011. Foreldrar Antoníu Marsibilar voru Lýður Bogason og Erla Guðlaug Magnúsdóttir. Sigurður og Antonía giftust árið 1970 og eignuðust tvær dætur, Kristínu skrifstofumann á Akureyri og Erlu Guðlaugu, hjúkrunarfræðing sem búsett er í Stokkhólmi. Maki Erlu er Jakob Yngvason verkfræðingur og eiga tvo syni, Sigurð Yngva og Kristófer Anton.

Sambýliskona Sigurðar síðustu ár er Kolbrún Theodórsdóttir. Börn hennar eru Björgvin, Þóra og Harpa Birgisbörn

Sigurður lærði húsasmíði í Iðnskólanum á Akureyri og að því námi loknu lærði hann tæknifræði í Tækniskólanum í Reykjavík. Megin hluta starfsævinnar vann hann á Verkfræðiskrifstofu Norðurlands sem hann stofnaði ásamt fleirum en síðustu 15 árin var Sigurður umdæmisstjóri Isavia á Norðurlandi eystra.

Sigurður var virkur í félagsmálum. Hann starfaði mikið fyrir Íþróttafélagið Þór, Lionsklúbb Akureyrar, Frímúrararegluna og Félag eldri borgara. Einnig var hann virkur í flokksstarfi Sjálfstæðisflokksins á Akureyri. Á árum áður fór hann mikið í lax- og rjúpnaveiði. Eftir að Sigurður hætti að vinna varð golf hans ástríða.

Útför Sigurðar fer fram frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 7. maí 2024 kl. 13.00.