Fara í efni
Fréttir

Andlát: Birgir Valur Ágústsson

Birgir Valur Ágústsson verkfræðingur á Akureyri er látinn, 86 ára að aldri. Birgir fæddist á Þórshöfn 10. október 1939 og lést á hjúkrunarheimilinu Hlíð á Akureyri 14. apríl. 

Eiginkona Birgis er Ingunn Þóra Baldvins og börn þeirra eru fimm: Baldvin f. 1963, Ágúst f. 1965, Þóra f. 1969, Birgir f. 1972 og Þórður f. 1977.

Foreldrar Birgis voru Helga Jóhanna Ágústsdóttir og Ágúst Georg Steinsson. Þau eignuðust fimm syni og var Birgir sá þriðji í aldursröðinni. Elstur var Baldur f. 1933, d. 2019, Vilhelm f. 1937, Birgir f. 1939, Skúli f. 1943 og Eyjólfur f. 1951, d. 2022.

Árið 1974 stofnaði Birgir fyrirtækið Höld ásamt bræðrum sínum, Vilhelm og Skúla. Meginstofninn í rekstri Hölds var alla tíð Bílaleiga Akureyrar, sem varð lang stærsta bílaleiga landsins. Snemma festist við þá bræður þekkt ættarnafn; þeir voru jafnan kallaðir Kennedy-bræður. Í viðtali við þann sem þetta skrifar í Morgunblaðinu árið 2003, voru þeir spurður út í nafnið og Skúli svaraði: „Við vorum að brölta eitthvað á sjöunda áratugnum og Kristjáni heitnum P. Guðmundssyni, umboðsmanni Sjóvá sem við skiptum mikið við þá, fannst við vera samhentir. Þannig hafði líklega verið skrifað um þessa frægu Kennedy-fjölskyldu í Bandaríkjunum og hann fór að kalla okkur Kennedy-bræður.“ Þeir sögðust ætíð hafa litið á uppnefnið sem gamanmál og varla hafi það skemmt fyrir þeim. „Okkur fannst þetta nú alltaf frekar hól en hitt,“ sagði Birgir.

Birgir var tæplega sex ára þegar fjölskyldan flutti frá Þórshöfn til Akureyrar. Við tók hefðbundin skólaganga í Barnaskóla Akureyrar og Gagnfræðaskóla Akureyrar, og síðan lá leiðin í Menntaskólann á Akureyrar þaðan sem Birgir lauk stúdentsprófi vorið 1959. Hann hóf nám í byggingarverkfræði í München í Þýskalandi, síðan í Háskóla Íslands og náminu lauk hann í  í Danmarks Tekniske Hojskole í Kaupmannahöfn árið 1965. 

Fyrst eftir nám starfaði Birgir hjá KEA og síðan sem kennari í Menntaskólanum á Akureyri. „Samhliða kennslunni hóf Birgir að leigja út bíla og árið 1974 flutti hann verkfræðistofu sína niður í Tryggvabraut 14 og fór samhliða hönnun húsa að vinna að ýmsum verkefnum fyrir fyrirtæki þeirra bræðra. Þrátt fyrir annasöm ár í rekstri Hölds hélt Birgir áfram að teikna og hanna hús hefur gert alla tíð,“ segir í bókinni Kennedybræður sem  Óskar Þór Halldórsson skrifaði og kom út 2018.

Útför Birgis Vals Ágústssonar verður frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn 30. apríl.