Alzheimersamtökin fræða á Akureyri

Alzheimersamtökin verða með fræðslu á Akureyri miðvikudaginn 4. júní kl. 17 í félagsmiðstöðinni Sölku að Víðilundi 22. Starf samtakanna verður kynnt og fjallað um heilabilun, góð samskipti og stuðning við aðstandendur. Fræðslufundurinn er opinn öllum áhugasömum og aðgangur er ókeypis.
Alzheimersamtökin halda reglulega fræðsluerindi víða um land og eru fulltrúar þess nú á ferðinni um Norðurland með erindi á Dalvík í dag, mánudag, Húsavík á þriðjudag og Akureyri á miðvikudag, eins og áður sagði. Miðað við veðurspá fyrir Norðurland gætu þessi áform þó verið í hættu.
Í tilkynningu samtakanna segir meðal annars: „Eitt af meginmarkmiðum Alzheimersamtakanna er að auka þekkingu og dýpka skilning á þeim áskorunum sem einstaklingar með heilabilun og aðstandendur þeirra standa frammi fyrir. Umræða um heilabilun er einnig mikilvægur þáttur til að minnka fordóma í samfélaginu.“
Betri skilningur og bætt samskipti
Á fræðslufundinn á Akureyri mæta frá Alzheimersamtökunum þær Thelma Jónsdóttir, fræðslustjóri samtakanna, og Ásta Kristín Guðmundsdóttir ráðgjafi. Þær kynna starfsemi samtakanna og fjalla um heilabilun og leiðir til að bæta samskipti við einstaklinga sem glíma við slíkar raskanir. Þá verður Björg Jónína Gunnarsdóttir, Alzheimertengill á Akureyri, einnig með kynningu á starfinu hér í bænum.
„Þeir sem mæta öðlast betri skilning á breyttum aðstæðum og fá hugmyndir að bættum samskiptum og samveru. Alzheimersamtökin hvetja alla áhugasama til að mæta, hvort sem um er að ræða einstaklinga með heilabilun, aðstandendur, fagfólk eða aðra áhugasama,“ segir einnig í tilkynningu samtakanna.