Fara í efni
Mannlíf

Allir syngjandi glaðir á öskudaginn – MYNDIR

Rökkvi Þorgrímsson 9 ára tunnukóngur á Glerártorgi sýnir mikil tilþrif. Hrafn Hauksson húsvörður er lengst til hægri; þetta var 25. árið sem hann kemur að barnaskemmtun í verslunarmiðstöðinni á öskudaginn. Mynd: Þorgeir Baldursson

Öskudagurinn rann upp að vanda að loknum sprengidegi sem hafði leyst bolludag af hólmi. Allt hefðbundið í þessari miklu hátíðarviku, í höfuðstað Norðurlands, veðrið lék meira að segja við hvern sinn fingur í morgun; nokkurra stiga frost en bjart og fallegt, börn skutust á milli fyrirtækja, sungu og þáðu víðast hvar gotterí að launum. 

Boðið var upp á skemmtiatriði í verslunarmiðstöðinni á Glerártorgi og þar var „kötturinn“ síðan sleginn úr tunnunni. Þorgeir Baldursson var á ferð um bæinn í morgun með myndavélina.

 

Halldór Ómar Áskelsson starfsmaður Húsasmiðjunnar var óvenju glæsilega hærður í morgun!