Fara í efni
Fréttir

Akureyrarvaka – Hvað er á dagskrá í dag?

Dansað á Rökkurró, setningarhátíð Akureyrarvöku í Lystigarðinum fyrir sléttu ári. Mynd: Hilmar Friðjónsson

Akureyrarvaka, árleg afmælishátíð bæjarins, hefst í dag með nokkrum viðburðum en á morgun er gríðarlega margt í boði hér og þar í bænum.

Löng hefð er fyrir því að Akureyrarvaka sé haldin sem næst afmælisdegi bæjarins, 29. ágúst, og svo skemmtilega vill til að þessu sinni að hann ber upp á laugardag. Á morgun verður afmælinu því fagnað á réttum degi, þegar 164 ár verða síðan Akureyri fékk kaupstaðarréttindi.

  • Akureyrarvaka verður sett formlega á Rökkurró, samkomu sem hefst í Lystigarðinum kl. 20.40 í kvöld
    Gítarleikarinn Ivan Mendez gefur tóninn en Berglind Ósk Guðmundsdóttir, bæjarstjóri Akureyrar setur hátíðina með ávarpi kl. 21.00. Að ávarpi bæjarstjóra loknu mun Páll á Húsafelli spila á steinhörpu við undirleik Hilmars Arnar Agnarssonar áður en dansarar frá listdansskóla Steps Dancecenter sýna dansverkið FLOW. Eftir það taka flæðir djassinn úr höndum og hljóðfærum tríósins THE Tríó. Áætlað er að dagskrá ljúki um kl. 22:00.


DAGSKRÁIN Í DAG

Smellið á rauða letrið til að sjá nánar upplýsingar um þann tiltekna viðburð.

Að venju verður tilteknum götum lokað vegna þeirra viðburða og mannfjölda sem væntanlega sækir miðbæinn um helgina. Einnig var vakin athygli á því í vikunni að óheimilt að fara með hunda á samkomur eins og Akureyrarvöku. Þá er umferð dróna bönnuð nema með leyfi hátíðarhaldara og flugturns Akureyrarflugvallar.

  • Sjá frétt akureyri.net í vikunni:

Götulokanir, drónabann og hundarnir heima

Alla viðburði Akureyrarvöku má sjá á vefsíðu hátíðarinnar akureyrarvaka.is og á Facebook- síðu Akureyrarbæjar.