Fara í efni
Fréttir

Akureyrarkirkja fellur frá skaðabótamáli

Hatursfull skilaboð voru skrifuð með úðabrúsa á fjórar kirkjur á Akureyri á sínum tíma, meðal annars Akureyrarkirkju eins og hér má sjá. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson.

Akureyrarkirkja hefur fellt niður skaðabótamál vegna skemmdaverka sem unnin voru á kirkjunni í upphafi árs 2017 og er málinu því að fullu lokið. „Í kjölfar fréttaflutnings af dómsmálinu hafði margt gott fólk samband við sóknarnefnd og lýsti vilja til að leggja henni lið ef hægt væri að finna aðrar leiðir til að mæta kostnaði við lagfæringu vegna skemmdanna. Úrbótakostnaður varð umtalsvert hærri en styrkir sem fengust til framkvæmdarinnar,“ segir í tilkynningu frá sóknarnefnd Akureyrarkirkju.

„Akureyrarkirkja er ein helsta táknmynd Akureyrar og nýtur mikils velvilja í samfélaginu. Sóknarnefnd hefur fengið til liðs við sig hóp valinkunnra einstaklinga sem hafa tekið að sér að stýra fjáröflun sem hefur það að markmiði að sóknarnefnd geti mætt verkefni sínu með liðsinni hollvina kirkjunnar.“