Áhyggjur af niðurskurði til farsældarþjónustu
Grunnur, félag fræðslustjóra og stjórnenda á skólaskrifstofum sveitarfélaga, lýsir yfir þungum áhyggjum af því að ekki sé gert ráð fyrir áframhaldandi framlögum til sveitarfélaga vegna farsældarþjónustu í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2027.
Frá árinu 2022 hafa sveitarfélög fengið um 1,1 milljarð króna á ári í gegnum Jöfnunarsjóð sveitarfélaga til að sinna verkefnum samkvæmt lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Fimm ára innleiðingartímabili laganna er að ljúka, en samkvæmt yfirlýsingu frá stjórn Grunns standa lögbundnar skyldur sveitarfélaganna áfram óbreyttar þrátt fyrir að fjármagnið eigi samkvæmt núverandi áformum að falla niður.
Í yfirlýsingunni er bent á að leik- og grunnskólar hafi gegnt lykilhlutverki í uppbyggingu samþættrar og snemmtækrar þjónustu við börn og fjölskyldur frá því lögin tóku gildi í ársbyrjun 2022. Samkvæmt lögunum eiga öll börn og foreldrar að hafa aðgang að tengilið farsældar í nærþjónustu og fyrir börn á leik- og grunnskólaaldri er tengiliðurinn starfsmaður þess skóla sem barnið sækir.
Innleiðingunni er ekki lokið
Að því er fram kemur í yfirlýsingunni er innleiðingu farsældarlaganna þó ekki lokið. Grunnur vísar þar til stjórnsýsluúttektar Ríkisendurskoðunar frá júní 2026, þar sem fram kom að innleiðingin væri skemmra á veg komin en stefnt hafði verið að og að víða skorti fjármagn, mannafla og tæknilega innviði. Félagið segir sér ekki kunnugt um að það endurmat á fjárþörf sveitarfélaga sem ráðgert var að færi fram að loknu innleiðingartímabilinu hafi farið fram.
Grunnur leggur jafnframt áherslu á að markmið farsældarlaganna sé að veita börnum og fjölskyldum stuðning snemma, áður en vandinn verður umfangsmeiri. Í yfirlýsingunni segir að snemmtækur og samhæfður stuðningur geti til lengri tíma stuðlað að betri lífsgæðum barna og minni útgjöldum vegna sérhæfðra og kostnaðarsamra úrræða. Í ávinningsmati sem lagt var til grundvallar lagasetningunni hafi árleg arðsemi slíkrar fjárfestingar verið metin um 11 prósent.
„Grunnur telur því varhugavert að draga úr fjármögnun á þessum tímapunkti,“ segir í yfirlýsingunni. Þar er jafnframt bent á að hætta sé á að sveitarfélög og skólar þurfi að draga úr þjónustu og faglegri umgjörð sem þegar hafi verið byggð upp ef ríkið hætti að fjármagna verkefnið.
Stjórn Grunns tekur undir þær áhyggjur sem fram hafa komið vegna málsins og hvetur Alþingi og stjórnvöld til að tryggja sveitarfélögum áfram fullnægjandi og varanlegt fjármagn til að standa undir þeim skyldum sem þeim hafa verið falin samkvæmt farsældarlögunum. Jafnframt er kallað eftir því að endurmat á fjárþörf fari fram í nánu samráði við sveitarfélögin.