Fara í efni
Fréttir

Aftur slegið til góðs í Skógarböðunum

Kjartan, framkvæmdastjóri Skógarbaðanna, er klár með kúlurnar fyrir góðgerðargolfið sem stendur yfir í þrjá daga. Hvetur hann alla til að líta við, reyna á sig og styðja gott málefni í leiðinni. Eyjan sem fólk þarf að reyna að hitta á er í baksýn í vatninu. MYND: SNÆ

Um helgina fer fram góðgerðargolf við Skógarböðin í samstarfi við Golfklúbb Akureyrar og Arctic Open mótið sem hefst í dag, fimmtudag. Í góðgerðargolfinu geta gestir tekið þátt í skemmtilegum golfleik þar sem hvert högg skiptir máli.

Kjartan Sigurðsson, framkvæmdastjóri Skógarbaðanna, segir að viðburðurinn fari fram fyrir utan Skógarböðin en við innganginn er búið að setja upp sérstakan skotpall þar sem áhugasamir geta spreytt sig í því að slá golfboltum yfir á litla eyju í vatninu fyrir framan Skógarböðin. Eyjan er í um 75 metra fjarlægð. „Þú getur keypt einn, þrjá eða fimm bolta og ef boltinn lendir á eyjunni og ertu kominn í pott með vinningum,“ segir Kjartan.

Eyjan er í 75 m fjarðlægð frá skotpallinum sem staðsettur er við innganginn í Skógarböðin. Hægt er að slá milli kl. 12 og 18.  Mynd: Axel Þórhallsson

Góðir vinningar í boði

Þetta er í annað skipti sem svona góðgerðargolf er haldið í Skógarböðunum en það var haldið í fyrsta sinn í fyrra, einnig í tengslum við Artic Open. Eyjan var þá sérstaklega búin til fyrir viðburðinn.

„Við verðum með starfsmann á svæðinu sem fylgist með og staðfestir hvort boltinn hafi lent á eyjunni. Þetta sást mjög vel í fyrra,“ segir Kjartan. Allir sem hitta inn í hringinn á eyjunni fá vinning frá Ölgerðinni auk þess sem þeir fara sjálfkrafa í útdrátt sem fram fer strax eftir helgi. Þar eru glæsilegir vinningar í boði til að mynda árskort í Skógarböðin, gjafabréf í golfherminn hjá Golfklúbbi Akureyrar, vildarpunktar frá Icelandair og ýmislegt fleira.

Golfboltarnir eru seldir á eftirfarandi verði:

  • Einn bolti á 1.000 kr.

  • Þrír boltar á 2.000 kr.

  • Fimm boltar á 3.000 kr.

Eyjan fyrir framan Skógarböðin sem kylfingar þurfa að hitta á til þess að eiga kost á vinningi. Vinningarnir eru þó ekki aðalatriðið heldur snýst viðburðurinn fyrst og fremst um að styrkja Minningar- og styrktarsjóðinn Örninn sem grípur börn sem missa foreldra eða ástvin. Mynd: SNÆ

Styður minningarsjóðinn Örninn

Allur ágóði rennur í ár Minningar- og styrktarsjóðinn Örninn, sem styður við börn sem misst hafa foreldri eða annan nákominn. „Þetta er lítið þekktur sjóður en gerir ómetanlegt starf,“ segir Kjartan og bætir við að það hafi verið Hildur Eir Bolladóttir, sóknarprestur í Akureyrarkirkju, sem benti þeim á sjóðinn. Í fyrra safnaðist rúm milljón króna fyrir Grófina geðrækt og vonast Kjartan til þess að upphæðin sem safnist í ár verði hærri. Mig langar að tvöfalda upphæðina frá því í fyrra. Ég væri rosalega til í að reyna að ná tveimur milljónum í ár.

Finnur Aðalbjörnsson, stofnandi Skógarbaðanna, reynir að hitta á eyjuna í vatninu fyrir framan Skógarböðin. Myndin er tekin á góðgerðargolfinu í fyrra. Mynd: Axel Þórhallsson

Opið öllum, ekki bara kylfingum

Viðburðurinn fer fram í dag fimmtudag, á morgun, föstudag og á laugardag frá hádegi og fram að kvöldmat „Það verður líka mögulegt að slá fyrir utan þessa tíma, þó að við verðum ekki alltaf með starfsmann við pallinn,“ útskýrir Kjartan. Gestir mega koma með sínar eigin kylfur en eins verða kylfur á staðnum. Kjartan leggur áherslu á að allir séu velkomnir að koma við að prófa. „Þú þarft ekki að vera golfari eða vera á leiðinni ofan í böðin til þess að taka þátt. Þetta er frábært tækifæri fyrir alla, hvort sem það eru fjölskyldur, ferðamenn eða áhugafólk um golfíþróttina, til að skemmta sér og styrkja gott málefni.