Fara í efni
Menning

Afnám tilviljunar í Hamraborg í Hofi

Puruñeka Duo, Matiss Leo Meckl og Tirzo Garrigós, í Hofi á Akureyrarvöku í sumar. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Afnám tilviljunar, eða Abolishing Chance, er nýtt þverfaglegt sviðsverk eftir Puruñeka Duo þar sem tónlist, hreyfing og hljóð fléttast saman. Verkið verður frumsýnt í Hofi á Akureyri á morgun, fimmtudaginn 12. nóvember klukkan 20.

Dúettinn Puruñeka Duo eru Akureyringurinn Matiss Leo Meckl og Tirzo Garrigós, spænskur skólabróðir hans við Konunglega tónlistarháskólann í Den Haag í Hollandi. Þeir komu fram í Hofi á Akureyrarvöku í sumar og fóru þá á kostum.

  • Matiss útskrifaðist sem slagverksleikari frá Tónlistarskólanum á Akureyri vorið 2024 og fékk þá hæstu mögulegu einkunn á framhaldsprófi, einkunnina 10 – sá fyrsti í sögu skólans. Frétt akureyri.net um það má sjá hér.

Verkið Afnám tilviljunar samanstendur af sex nýjum tónverkum fyrir slagverksdúó, samin af tónskáldum sem öll hafa stundað nám við áðurnefndan skóla í Den Haag. Verkefnið byggir á samstarfi sex tónskálda, tveggja danshöfunda, dansara og tónlistarmanna.

Eftir því sem fram kemur í frétt á vef Menningarfélagsins er innblásturinn sóttur í ljóðið Un coup de dés jamais n’abolira le hasard eftir franska ljóðskáldið Stéphane Mallarmé. Ljóðið brýtur gegn hefðbundnu formi og opnar fyrir óhlutbundnar hugmyndir og margvíslega túlkun.

Í sviðsverkinu er þessi nálgun útfærð með óhefðbundnum hljóðfærum, nýjum leikaðferðum og samspili tónlistar og hreyfingar. Hvert tónskáld skapar sinn eigin tónlistarheim en verkin tengjast öll viðfangsefnum tilviljunar og ófyrirsjáanleika.

Á vef MAk segir að verkið  gangi lengra en hefðbundin slagverkstónlist og hver gjörningur geti tekið óvænta stefnu.

Matiss Leo Meckl og Tirzo Garrigós í Hofi á Akureyrarvöku í sumar þar sem þeir vöktu mikla lukku. Mynd: Skapti Hallgrímsson