Aðalsteinn sýnir Hausa og andlitsmyndir
Aðalsteinn Þórsson opnar í kvöld, fimmtudagskvöld, sýninguna Hausar og andlitsmyndir á Leyni við Hafnarstræti 95 á Akureyri. Þar sýnir hann verk frá ólíkum tímum á ferlinum, unnin með fjölbreyttum aðferðum en eiga það sameiginlegt að fjalla um höfuð manna eða vætta.
Elsta verkið á sýningunni er frá aldamótunum 2000 en það yngsta var klárað á vormánuðum þessa árs. Myndirnar eru unnar með olíulitum, akríl, bleki, gouache eða viðarkoli á pappír eða hördúk.
Teikning og málun hafa undanfarin ár verið hliðargrein í listsköpun Aðalsteins, en þó mikilvægur þáttur í henni. „Hér byrjaði þetta allt, með línu á blaði og hvað heillar mannshugan meir en andlit hins?“ segir í lýsingu á sýningunni. Þar er jafnframt bent á hvernig andlit eru stór hluti af samskiptum fólks, allt frá fyrstu tengslum við andlit móðurinnar til þess hvernig við lesum í svipbrigði og látbragð annarra í daglegu lífi.
Á sýningunni má sjá bæði hefðbundnar andlitsmyndir og „myndir af hausum úr hugarheimi listamannsins.“ Flest verkin hafa ekki verið sýnd áður, þótt sum hafi birst á samfélagsmiðlum.
Aðalsteinn útskrifaðist úr Myndlistaskólanum á Akureyri árið 1993 og lauk meistaranámi í frjálsri myndlist frá Dutch Art Institute í Enschede í Hollandi árið 1998. Hann býr og starfar í Eyjafirði og hefur frá árinu 2016 unnið að myndlist á svæðinu. Helsta verkefni hans er Einkasafnið í Eyjafjarðarsveit, þar sem hann safnar og varðveitir hversdagslega afganga úr eigin lífi.
Meðal nýlegra sýninga hans eru Heimalingar 26 við Dyngjuna í Eyjafjarðarsveit, Liðssafnaður - málamiðlun í Þistilfirði og samsýningin Rúllandi snjóbolti 19 á Djúpavogi.
Sýningin Hausar og andlitsmyndir verður opnuð í kvöld, fimmtudagskvöld, klukkan 20. Hún er sölusýning og verður opin á opnunartíma staðarins. Nánari upplýsingar um listamanninn og verk hans má finna á vefsíðu hans, steini.art.