Fara í efni
Menning

A! Gjörningahátíð hefst á fimmtudag

Þóra Sólveig Bergsteinsdóttir og Liv Nome verða með fyrsta atriðið á gjörningahátíðinni, á Listasafninu á fimmtudagskvöldið.

A! Gjörningahátíð hefst næstkomandi fimmtudag, 7. október, kl. 20 í Listasafninu á Akureyri og stendur til sunnudags. A! er fjögurra daga alþjóðleg gjörningahátíð sem haldin er árlega og nú í sjöunda sinn. Ókeypis er inn á alla viðburði.

Hér má sjá dagskrá hátíðarinnar.

Sérstök dómnefnd valdi úr innsendum umsóknum listamanna og eru fjölbreyttir gjörningar og leikhústengd verk af öllum toga á dagskránni. Þátttakendur eru ungir og upprennandi listamenn, ásamt reyndum og vel þekktum gjörningalistamönnum og leikhúsfólki. Að þessu sinni fara gjörningarnir fram í Listasafninu á Akureyri, Menningarhúsinu Hofi, Deiglunni, Mjólkurbúðinni, Eyjafjarðarsveit og á Ketilkaffi.

Listamennirnir sem koma fram í ár eru: Þóra Sólveig Bergsteinsdóttir og Liv Nome, Anna Richardsdóttir, Egill Logi Jónasson, Sigtryggur Berg Sigmundsson, Snorri Ásmundsson, Brák Jónsdóttir, Steinunn Gunnlaugsdóttir, Hymnodia, Elisabeth Raymond, Amber Smits og Niklas Niki Blomberg, Hombre Rural og Libia Castro, Ólafur Ólafsson og Töfrateymið.

Gjörningahátíðin er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Leikfélags Akureyrar, Menningarhússins Hofs, LÓKAL alþjóðlegrar leiklistarhátíðar, Gilfélagsins, Myndlistarfélagsins, Listnámsbrautar Verkmenntaskólans á Akureyri og Kynningarmiðstöðvar íslenskrar myndlistar. Að auki eru nokkrir viðburðir utan dagskrár; off venue eins og það er kallað á ensku.

Snorri Ásmundsson.

Brák Jónsdóttir.

Elisabeth Raymond / Amber Smits / Niklas Niki Blomberg.

Sigtryggur Berg Sigmundsson.