98% deildarmyrkvi verður á Akureyri
Almyrkvi á sólu verður sýnilegur á vesturhluta landsins síðdegis á miðvikudaginn en í öðrum landshlutum verður deildarmyrkvi, þar sem tunglið nær ekki að skyggja á sólina að fullu. Mjög mikilvægt er að nota sólmyrkvagleraugu þegar horft er til sólar á meðan deildarmyrkvi stendur yfir.
Almyrkvi á sólu var síðast sýnilegur á Íslandi í júní árið 1954 og næsta tækifæri hérlendis gefst ekki fyrr en eftir 170 ár. En næsti almyrkvi á sólu á jörðinni verður samt innan árs, eða 2. ágúst 2027.
Á vefsíðunni solmyrkvi2026.is er gagnvirkt sólmyrkvakort þar sem hægt er að setja inn heimilisfang, eða smella á kortið, til að fá upplýsingar um hvernig sólmyrkvinn verður þar sem viðkomandi er staddur. Sem dæmi, þá birtast neðangreindar upplýsingar ef valinn er staður á Akureyri af handahófi:

Á Akureyri nær deildarmyrkvinn hámarki um það bil stundarfjórðung í sex síðdegis.
Hrísey er örlítið vestar en byggðin á Akureyri og þar verður deildarmyrkvinn rétt rúmlega 98%. Grímsey er heldur austar og þar verður myrkvinn ögn minni en inni á Akureyri.
Þótt almyrkvinn verði ekki yfir Íslandi nema alveg vestast er ekki þar með sagt að þau sem stödd eru annars staðar á landinu upplifi ekki neitt. Sævar Helgi Bragason, helsti sérfræðingur þjóðarinnar í gangverki himintunglanna, segir í samtali við akureyri.net að utan vesturhluta landsins nái deildarmyrkvinn yfir allt landið og minnstur verður hann um 95% austast á landinu.
Alls staðar á Íslandi verður sólmyrkvi.
„Austan við almyrkvaslóðina verður alls staðar djúpur og fallegur deildarmyrkvi og þá þarf að nota sólmyrkvagleraugu til að sjá hann en aðeins á meðan horft er að sólinni,“ segir Sævar Helgi og harmar upplýsingaóreiðu sem virðist vera í gangi varðandi notkun á sólmyrkvagleraugum. Alltaf þurfi að nota sólmyrkvagleraugu þegar horft er að sólinni í deildarmyrkva – en bara þau sem upplifa almyrkva taka þau af sér á meðan almyrkvinn gengur yfir. Þau sem hyggjast ljósmynda sólmyrkvann eða fylgjast með honum gegnum sjónauka þurfa að gæta þess að nota sólarsíur.
Á upplýsingasíðunni um sólmyrkvann er m.a. sagt frá því við hverju má búast fyrir þau sem verða stödd austan við almyrkvann.
Þegar myrkvinn er í hámarki frá um það bil 17:40 til 18:00 upplifir fólk:
- Að lofthiti lækkar, þú finnur fyrir myrkvanum á eigin skinni
- Að skuggar verða skarpari og loðnari
- Einstaka silfurlitaða rökkurbirtu
- Að verulega dimmir, mest næst slóðinni en minnst austast á landinu
- Venus og Júpíter gætu sést þegar myrkvinn er í hámarki næst almyrkvaslóðinni
- Næst slóðinni sér fólk dökkan skugga tunglsins færast yfir Vesturland
Eins og áður segir leggur Sævar Helgi áherslu á að brýnt sé að nota sólmyrkvagleraugu þegar horft er í sólina í deildarmyrkva. Á upplýsingasíðunni er farið yfir það hvers vegna nauðsynlegt er að nota gleraugu og einnig minnst á hvað eigi ekki að nota í stað gleraugna. Til dæmis duga hefðbundin sólgleraugu alls ekki. „Hefðbundin sólgleraugu draga aðeins 3x eða 4x úr birtu sólar en sólmyrkvagleraugu minnka birtu sólar um 100.000x. Í gegnum örugg sólmyrkvagleraugu á himininn að vera kolsvartur og sólin daufur hvítur eða appelsínugulur bolti,“ segir Sævar Helgi.
Ef einhver á eftir að verða sér úti um sólmyrkvagleraugu fyrir miðvikudaginn þá fást þau hér og þar. Óvísindaleg könnun blaðamanns leiddi í ljós að Elko, Krónan og A4 auglýsa sólmyrkvagleraugu til sölu á tiltölulega vægu verði, auk þess sem heyrst hefur að ýmis fyrirtæki á borð við tryggingafyrirtæki bjóði viðskiptavinum sínum gleraugu án endurgjalds.
Hversu vel sólmyrkvinn sést getur síðan oltið á skýjafarinu en alltaf mun þó dimma. Veðurstofa Íslands hefur sett upp sérstaka vefsíðu þar sem birt verður sólmyrkvaspá og hægt verður að fylgjast með nýjustu veðurspám þar fram að sólmyrkvadegi.