Fara í efni
Fréttir

41,24% höfðu kosið á Akureyri klukkan 17

Kjósendur í Verkmenntaskólanum á Akureyri í morgun. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Kjörsókn í bæjarstjórnarkosningunum á Akureyri í dag er svipuð og fyrir fjórum árum. Klukkan fimm í dag höfðu 6.149 manns kosið semer 41,24% þátttaka.

Á kjörskrá eru 15.544 skv. heimasíðu Akureyrarbæjar þar sem upplýsingar um þátttöku kjósenda eru birtar á klukkustundar fresti. Kjörsókn í dag hefur verið sem hér segir:

  • Kl. 10:00 voru 445 búnir að kjósa, alls 2,98% þátttaka.
  • Kl. 11:00 voru 1050 búnir að kjósa, alls 7,04% þátttaka.
  • Kl. 12:00 voru 1680 búnir að kjósa, alls 11,29% þátttaka.
  • Kl. 13:00 voru 2460 búnir að kjósa, alls 16,50% þátttaka.
  • Kl. 14:00 voru 3392 búnir að kjósa, alls 22,75% þátttaka.
  • Kl. 15:00 voru 4409 búnir að kjósa, alls 29,57% þátttaka.
  • Kl. 16:00 voru 5254 búnir að kjósa, alls 35,24% þátttaka.
  • Kl. 17:00 voru 6149 búnir að kjósa, alls 41,24% þátttaka.