Fara í efni
Mannlíf

40 ára afmælistónleikar Gildrunnar í Hofi

Afmælis-stórtónleikar! Karl Tómasson, Þórhallur Árnason, Birgir Haraldsson, Pálmi Sigurhjartarson og Sigurgeir Sigmundsson að loknum vel heppnuðum 40 ára afmælis-stórtónleikunum í Háskólabíói í Reykjavík í haust. Mynd: Ásta Magg

Rokkararnir í hljómsveitinni Gildrunni fögnuðu 40 ára afmæli með stórtónleikum í Háskólabíói síðastliðið haust og endurtaka nú leikinn í Hofi á morgun, laugardagskvöld. Sveitin var stofnuð í Mosfellsbæ árið 1985 af strákum sem hófu tónlistarferilinn í gagnfræðaskóla bæjarins og hefur starfað með hléum síðan.

„Við höfum alltaf haft mjög gaman af því að spila á Norðurlandi og höfum margsinnis spilað á Akureyri, höfum til dæmis verið með ferna tónleika á Græna hattinum á síðustu árum – alltaf fyrir troðfullu hús og það hefur verið æðislega gaman. En í tilefni stórafmælisins langaði okkur að bjóða upp á tónleik í Hofi í þetta sinn,“ segir trommarinn Karl Tómasson – Kalli Tomm – í samtali við akureyri.net.

Karl hefur verið búsettur á Hofsósi undanfarin og hann segir að hljómsveitin æfi mest þar. Einn í hljómsveitinni býr nefnilega austur á fjörðum en hinir á borgarhorninu, þannig að Hofsós er nokkuð miðsvæðis og þar hafa þeir góða aðstöðu til æfinga.

Grunnur lagður að Gildrunni

Sigurgeir Sigmundsson, gítarleikari hljómsveitarinnar, rifjaði upp fyrstu skrefin í skemmtilegri færslu á Facebook á dögunum.

„Það var 1985 sem félagarnir Karl Tómasson og Þórhallur Árnason komu til mín í Glæsibæ þar sem ég var að vinna í plötubúð Steina hf. Birgir Haraldsson söngvari kom ekki því hann var að vinna.“ skrifar Sigurgeir. „Þá voru þeir að leggja grunninn að hljómsveitinni Gildrunni eftir nokkurra ára bras undir öðrum nöfnum eins og gengur. Þá kom út platan „Huldumenn“ og svo „Hugarfóstur“ en þessar plötur lögðu grunninn að Gildruhljómi sem svo margir þekkja.“
 
 
Gildran á 40 ára afmælis-stórtónleikunum í Háskólabíói í Reykjavík síðastliðið haust. Mynd: Ásta Magg
Sigurgeir rifjar upp að hann að gerð þriðju plötunnar sem kölluð var saumaða platan en svo tók Gulli Falk við í 2 ár og gerði með þeim plötuna „Ljósvakaleysingjar“ 1990. Ég datt aftur inn í hópinn 1991 og þá voru þeir að undirbúa gerð plötu sem fékk nafnið „ÚT“. Við vorum með aðstöðu á Blikastöðum og í þá daga „æfðu“ menn saman og sömdu lög saman. Allir í vinnu eða skóla, en samt æft á virkum dögum og spilað hverja helgi.
 
Hann segist hafa haft áhyggjur af því á þessum tíma að hann myndi „rústa Gildruhljómnum“ enda hafi ÚT-platan orðið allskonar; bland af rokki, blús, þar hafi verið U2 fílingur, og þjóðleg og jafnvel spænsk áhrif. „Þetta var samt ekki allt frá mér komið. Gildran var að þroskast og þróast. Svo gáfum við út safnplötuna Gildran í 10 ár 1997 en hún var bland af nýjum lögum og ennfremur safnplata.“
 
Meðal laga á plötunni var „Good balance“ sem Sigurgeir segir hafa verið í „skuggalegri 80´s útsetningu sem breskur upptökustjóri bar ábyrgð á, enda var lagið tekið upp í Bretlandi.“ Hann bætir við: „Lagið var einhvern vegin þannig að við spiluðum það aldrei á tónleikum og ég held að menn hafi hreinlega verið að reyna að gleyma því.“
 
Á fullt erindi í dag
 
Fyrir afmælistónleikana síðastliðið haust var ákveðið að dysta rykið af laginu, eins og Sigurgeir orðar það, og þá var allt í einu komið annað hljóð í strokkinn.
 
„Nú var ég einn eftir í bænum, Biggi kominn í Kjósina, Kalli á Hofsós og Þórhallur á Eskifjörð þar sem hann hefur reyndar verið frá 1994. Pálmi Sigurhjartarson bættist í hóp meðlima á höfðuðborgarsvæðinu þannig að einfaldasta lausnin fyrir okkur var að æfa á Hofsósi sem við höfum gert,“ og segir þá félaga afar þakkláta fyrir mikinn velvilja sem þeim hefur verið sýndur þar.
 
„Þegar við byrjuðum að fikta við lagið og endurútsetja fundum við fljótt að við vorum með eitthvað skemmtilegt í höndunum. Það er nú þannig að þó svo árin séu orðin ansi mörg þá erum við samt betri hljóðfæraleikar í dag en í „old days“, græjurnar betri og svo erum við með Ásmund Jóhannsson frábæran hljóðmann sem mixaði okkur í Háskólabíói þann 18. október sl. Hann mixaði svo lagið í Studio Paradís en Eiríkur Hafdal hjá Recmedia myndaði hljómleikana og sá ennfremur um eftirvinnslu. Gott að eiga góða að.“
 
Gildran birti nýja útgáfu af laginu bæði á Youtube og Spotify. Það er 5 mínútur að lengd, og kemst því líklega ekki á vinsældarlista útvarpsstöðvanna, segir gítarleikarinn, en það skiptir okkur ekki máli. Við erum ánægðir og glaðir með þetta og við vonum að þið verðið það líka. Lagið er ákall um góð samskipti og að þau leiði af sér jafnvægi sem kemur í veg fyrir árekstra manna milli. Textinn sem er á ensku er eftir Kalla og Línu konu hans og á fullt erindi í dag.