Fara í efni
Fréttir

30-40 grindhvalir strandaðir í Ólafsfirði

Mynd: Kristín Sóley Björnsdóttir

Á bilinu þrjátíu til fjörutíu grindhvalir strönduðu síðdegis í fjörunni innst í Ólafsfirði. Lögregla og björgunarsveitir á Tröllaskaga vinna nú að því að koma dýrunum aftur til sjávar, og hafa björgunarsveitir frá Ólafsfirði, Dalvík, Siglufirði og Akureyri verið kallaðar til.

Samkvæmt útvarpsfréttum RÚV kl. 18, þar sem rætt var bæði við  Kristófer Hafsteinsson, varðstjóra hjá lögreglunni á Akureyri og Láru Stefánsdóttur í svæðisstjórn björgunarsveita á Tröllaskaga, vinna sjávarföllin með björgunarfólki og aðstæðurnar fari batnandi nú þegar farið er að flæða að en háflóð er upp úr klukkan sjö í kvöld.  Lára sagði í samtali við RÚV að talið sé að allt að  sextíu dýr hafi verið á strandstað þegar mest var. Björgunaraðgerðir gangi nú betur en í upphafi, þegar umfang málsins virtist yfirþyrmandi.  Vonir standa til að aðgerðum ljúki á næstu klukkutímum, þó að nokkrir hvalir séu enn í erfiðum aðstæðum í fjörunni.

Myndir: Kristín Sóley Björnsdóttir.