Fara í efni
Fréttir

210 þúsundum og skírteininu fátækari

Mynd af Facebook síðu lögreglunnar.

Ökumaður á ferðalagi í umdæmi lögreglunnar á Norðurlandi eystra var í dag stöðvaður  á Ólafsfjarðarvegi á 154 km hraða á klukkustund.  

Viðurlög við þessari háttsemi eru ökuleyfissvipting og 210.000 króna sekt í ríkissjóð að því er fram á Facebook síðu lögreglunnar á Norðurlandi eystra.

Lögreglan segir: Þó svo að lang flestir aki af ábyrgð, gætni og tillitssemi og beri sjálfum sér gott vitni og eru öðrum góð fyrirmynd, þá biðlum við til fólks að fara varlega í umferðinni. Vonum að umræddur ökumaður dagins í dag hugsi sinn gang og komi betur stemmdur til aksturs síðar.