200 vörur á Prísverði í Krambúðinni
Verð á 200 vörum hefur verið lækkað í öllum Krambúðum; „valdar hafa verið 200 vörur sem skipta heimilin í landinu máli, og þær nú boðnar á sama verði og í Prís,“ segir í tilkynningu frá Samkaupum. Ein Krambúð er á Akureyri, á mótum Borgarbrautar og Hlíðarbrautar.
„Krambúðirnar eru vítt og breitt um landið og því er gaman að geta boðið þetta lága verð svona víða,“ segir Svanur Valgeirsson, framkvæmdastjóri Krambúðanna, 10-11 og Prís í tilkynningunni. „Prís hefur boðið lægsta verðið á landinu frá opnun og þess vegna geta viðskiptavinir okkar treyst því að þessar 200 vörur verði alltaf á lægsta fáanlega verðinu,“ segir Svanur.
Fram kemur að breytilegt getið verið frá viku til viku um hvaða vörur sé að ræða, en að loforðið snúist um að vörurnar verði 200. „Þetta eru ávextir og grænmeti, mjólkurvörur, kjötvörur og fleira.“