Fara í efni
Íþróttir

200 skráðu sig fyrsta kvöldið í Súlur vertical

Opnað var fyrir skráningu í fjallahlaupið Súlur Vertical í gærkvöldi og fljótlega höfðu um 200 mannns skráð sig til þátttöku. Hlaupið fer fram laugardaginn 31. júlí.

Fjallahlaup þetta var fyrst haldið árið 2016 að frumkvæði Þorbergs Inga Jónssonar ofurhlaupara. UFA Eyrarskokk tók síðan við keflinu árið 2017 og hefur haldið hlaupið síðan. Viðburðurinn hefur vaxið ár frá ári, hlaupið féll reyndar niður í fyrra en núna, árið 2021, bætist við ný og enn meira krefjandi hlaupaleið: 55 kílómetra leið með 3.000 metra hækkun; hlaupið er upp á bæjarfjöllin, Súlur og Hlíðarfjall, og alla leið niður á Ráshústorgið þar sem hlaupararnir koma í mark.

Aðrar vegalengdir eru óbreyttar. Annars vegar 28 km hlaup þar sem hlaupið er upp á Súlur og hins vegar 18 km hlaup, sem sagt er henta öllum sem hafa áhuga á utanvegahlaupum, jafnt byrjendum sem lengra komnum.

Allir keppendur verða ræstir í Kjarnaskógi.

Nánar upplýsingar um hlaupið