Fara í efni
Menning

11 glæný tónverk barna og ungmenna frumflutt

Tónleikar Upptaktsins á Norðurlandi eystra, tónsköpunarverðlauna barna og ungmenna, fóru fram í gær, sunnudag, í Menningarhúsinu Hofi og þóttu afar velheppnaðir tónleikar, að því er segir í tilkynningu frá Menningarfélagi Akureyrar.

Þar fluttu atvinnuhljóðfæraleikarar ellefu glæný tónverk eftir ungmenni á aldrinum 10-16 ára. Á tónleikunum fengu tónlistarstefnur að njóta sín, og áheyrendur fengu að heyra allt frá reggí yfir í háklassískan menúett. Þar má nefna rokk, popp, jazz, tölvuleikjatónlist „og tónlist sem myndi sóma sér vel í hvaða kvikmynd sem er.“

Hátt í 100 manns fögnuðu ungu tónskáldunum tíu með glimrandi lófataki í lok tónleikanna.

„Meðan bylur réði ríkjum utanhúss bræddi sköpunargleðin og hlýjan í verkum ungmennannna tíu hjörtu þeirra sem á hlýddu og víða sá ég tár glitra á hvarmi,“ segir Kristín Sóley Björnsdóttir viðburðastjóri Menningarhússins Hofs og verkefnisstýra Upptaktsins. „Við erum ríkt samfélag að eiga svo hæfileikarík og skapandi ungmenni í tónlist! Ég er líka afar stolt af því að Menningarfélag Akureyrar hafi skapað vettvang til að ýta undir sköpunarkraft ungmenna sem hafa áhuga á tónlist og ég bið þau einlæglega að halda áfram að semja og hvet þau sem langar til að prófa að semja verk að kýla á það. Allt getur gerst. Ég hlakka mikið til að sjá nýjar hugmyndir kvikna og streyma inn að ári í Upptaktinn 2025!“ segir Kristín Sóley jafnframt.

Útsetning verkanna var í höndum Kristjáns Edelsteins og Gretu Salóme, sem einnig var tónlistarstjóri Upptaktsins.

Ungtónskáldin og verk þeirra:

  • Anna Lovísa Arnarsdóttir – Eyrun mín sjá liti
  • Eiður Reykjalín Hjelm – Frühlig im Wald (Vor í skóginum).
  • Hákon Geir Snorrason – Svigrúm
  • Heimir Bjarni Steinþórsson – Metal Dandelion
  • Jóhann Valur Björnsson – Unfathomable
  • Jóhann Valur Björnsson – Blossom
  • Jóhanna Kristín Júliusdóttir – Fjölskyldur
  • Svanborg Alma Ívarsdóttir – Draumur túnfisksins
  • Þórhallur Darri – Show me your heart
  • Þórhildur Eva Helgadóttir – Froskadansinn
  • Tobías Þórarinn Matharel – Trompetlag

Tónleikarnir voru teknir upp bæði í hljóð og mynd til skrásetningar og fyrir ungmennin til eignar.

Lög þeirra munu birtast á vef RÚV innan skamms og verða í kjölfarið einnig aðgengileg á Youtuberás Upptaktsins á Norðurlandi eystra.