Fara í efni
Íþróttir

100 kílómetra hlaup hluti af Súlur Vertical

Mynd af vef Súlur Vertical fjallahlaupsins

Forráðamenn fjallahlaupsins Súlur Vertical tilkynntu í morgun að nýr möguleiki verði í boði þegar hlaupið verður þreytt næst, 5. ágúst í sumar –  100 kílómetra hlaup!

Á síðasta ári gátu hlauparar valið um þrjár vegalengdir, 18 km og 28 km sem fyrr, og 55 km í fyrsta skipti. Það síðastnefnda var nefnt Ultra en 100 km hlaupið verður kallað Gyðjan.

Opnað verður fyrir skráningu í hlaupið í hádeginu á miðvikudaginn, 8. febrúar.