Fara í efni
Minningargreinar

Stefán Þórðarson – lífshlaupið

Stefán Þórðarson fæddist í Hléskógum við Grenivík í Suður-Þingeyjarsýslu 31. desember 1935. Hann lést 21. ágúst 2025 á hjúkrunarheimilinu Lögmannshlíð á Akureyri.

Foreldrar Stefáns voru Þórður Jónsson, f. 1899, d. 1967, og Nanna Stefánsdóttir, f. 1900, d. 1956. Stefán var næst yngstur sjö systkina. Bræður hans voru Þráinn, f. 1923, d. 1991, Baldur, f. 1924, d. 1989, Ingvi, f. 1926, d. 1991, Hjalti, f. 1928, d. 2015, og Andrés, f. 1940, d. 2024. Systir Stefáns var Friðgerður, f. 1930, d. 2021.

Stefán – eða Stebbi í Teigi eins og hann var yfirleitt kallaður í seinni tíð – fluttist á níunda aldursári að Hjarðarholti í Laxárdal. Hann fór til náms í Iðnskólanum á Akureyri og útskrifaðist þaðan 1956, á námsárunum kynntist Stefán tilvonandi eiginkonu sinni Þorgerði. K. Jónsdóttur. Þau giftu sig árið 1959 og hófu búskap veturinn 1959-1960 í Hjarðarholti og síðar í Búðardal. Árið 1963 keyptu þau jörðina Teig í Eyjafjarðarsveit. Þau stunduðu þar sinn búskap og bjuggu á Teigi allt fram á sumarið 2023 en Þorgerður lést í nóvember 2023. Óhætt er að segja að þau hjónin hafi stundað fjölbreyttan búskap sem taldi m.a. seiðaeldi og kartöflurækt, einnig var búið með sauðfé, kálfaeldi og sjókvíaeldi var stundað um tíma. Lengst af var þó búið með svín og er enn gert. Margir tengja þó gjarnan Stebba við heykögglaverksmiðjuna sem hann smíðaði og starfrækti um all langt skeið.

Afkomendur Stefáns og Þorgerðar eru: Stúlka, andvana fædd 3. mars 1959; Jón, f. 12. febrúar 1960, maki Kristín Sigurðardóttir f. 23. desember 1964 og eiga þau einn son, fyrir átti Jón tvö börn með Evu Sólveigu Úlfsdóttur; Nanna, f. 23. júní 1963, fyrri maki hennar var Hrafn Sigurðsson og eiga þau tvö börn. Seinni maki var Héðinn Björnsson og eiga þau eina dóttur; Þórður, f. 14. nóvember 1964, maki Kristbjörg Þóroddsdóttir, f. 12. apríl 1966, og eiga þau þrjú börn; Stefán Birgir, f. 22. desember 1967, maki Herdís Ármannsdóttir, f. 13. desember 1968 og eiga þau tvö börn, fyrir átti Herdís einn son; Óli Valur, f. 8. júlí 1970, maki Selma Bergmann, f. 16. maí 1975 og eiga þau einn son, fyrir átti Selma einn son; Ingvi, f. 9. mars 1974, maki Selma Dröfn Brynjarsdóttir, f. 18. mars 1975, og eiga þau fjögur börn. Stefán lætur eftir sig stóran hóp afkomenda og telur fjölskyldan alls 60 manns.

Útför Stebba fer fram frá Akureyrarkirkju í dag, 3. september, klukkan 13.00.

Stefán Þórðarson

Hafþór Magni Sólmundsson skrifar
03. september 2025 | kl. 06:00

Stefán Þórðarson

Herdís Ármannsdóttir. skrifar
03. september 2025 | kl. 06:00

Sveinn Bjarnason

Egill Jónsson skrifar
26. ágúst 2025 | kl. 06:00

Þorgerður Stefanía Halldórsdóttir

Árný Benediktsdóttir skrifar
25. ágúst 2025 | kl. 16:00

Þorgerður Stefanía Halldórsdóttir

Vilborg Erla Sveinbjörnsdóttir skrifar
23. ágúst 2025 | kl. 06:00

Þorgerður Stefanía Halldórsdóttir

Kári Kárason skrifar
23. ágúst 2025 | kl. 06:00