Fara í efni
Menning

Where Ends Meet í Deiglunni

Gestalistamaður Gilfélagsins, Mihaela Hudrea sýnir afrakstur dvalar sinnar í Deiglunni um helgina. Sýninguna kallar hún Where Ends Meet.

„Í verkum sínum rannsakar Mihaela Hudrea umheiminn á meðan hún varpar fram grundvallarspurningum um veruleikann, tilveruna og skynjun. Innblásin af þeim hugtökum sem eru könnuð í heimspeki og vísindum er nálgun hennar með málun, teikningu og innsetningum,“ segir í kynningu frá Gilfélaginu.

„Sem listamaður veltir hún fyrir sér tengslum okkar við jörðina og alheiminn í ljósi samtíma menningar og í sögulegu samhengi. Samband milli okkar, okkar og tímans. Með því að ráða í kerfi sjónar og skynjunar gefur hún verkunum hlutverk, þau verða rými þar sem við getum tengst alheiminum. Mihaela mun útvíkka þessa nálgun og gera ný verk í samhengi dvalarinnar í Gestavinnustofu Gilfélagsins.“

Mihaela Hudrea, sem fædd er 1989 í borginni Cluj-Napoca í Rúmeníu, er með MA frá KASK (Royal Academy of Fine Arts í Gent, Belgíu) og BA frá Hönnunar og listaháskólanum Cluj-Napoca í Rúmeníu.

Sýningin stendur yfir á laugardag og sunnudag. Opið er frá klukkan 14.00 til 17.00 báða dagana.