Fara í efni
Menning

Viltu syngja eða dansa í Chicago hjá LA?

Leikfélag Akureyrar frumsýnir söngleikinn Chicago í Samkomuhúsinu í janúar á næsta ári og Menningarfélag Akureyrar (MAk) leitar nú bæði að leikkonum í hlutverk Roxy Hart, og að dönsurum, 20 ára eða eldri, í sýninguna.

Hægt er að skrá sig í prufu fyrir hvort tveggja á heimasíðu Menningarfélagsins – hér í áheyrnarprufu fyrir hlutverk Roxy og hér í dansprufu.

„Chicago eftir John Kander, Fred Ebb og Bob Fosse er einn þekktasti og vinsælasti söngleikur allra tíma. Hann var frumsýndur á Broadway árið 1975 og endurgerður árið 1996 en sú uppfærsla hefur gengið fyrir fullu húsi síðan,“ segir á vef MAk.

„Meðal þekktra laga úr Chicago eru; All that jazz, Funny honey, Mr Cellophane ofl. Söngleikurinn gerist á 3 áratug liðinnar aldar í hinni iðandi og spilltu Chicagoborg og fjallar um siðlausu glæpakvendin Velmu Kelly og Roxy Hart. Þær eiga sér þann draum heitastan að verða frægar og til að ná athygli fjölmiðla svífast þær einskis. Beittur, fyndinn og seiðandi söngleikur í frábærri þýðingu Gísla Rúnars Jónssonar.“