Vatnslitir, skrautsteinar, ljóðalestur og Lendar
Hvaða viðburðir á sviði menningar og mannlífs eru í boði á svæðinu þessa vikuna? Akureyri.net skellir í samantekt í hverri viku, þar sem lesendur geta séð hvað verður á seyði og penslað inn í dagatalið.
Nefna má að í þessari viku er á dagskrá ljóðakvöld í Laxdalshúsi í fornbókaversluninni Svartar bækur, Vatnslitahátíð Íslands verður sett í Listasafninu á fimmtudaginn og sama dag opnar Surekha Datye sýningu á Amtsbókasafninu þar sem hún sýnir yfir 70 fjörusteina sem hún hefur umbreytt í listaverk. Þá opnar Solveig Thoroddsen myndlistarsýningu í Mjólkurbúðinni á föstudag og tónleikar verða á Græna hattinum bæði föstudagskvöld og laugardagskvöld.
Tónleikar
- Sycamore Tree – Græna hattinum, föstudag 11. september kl. 21. Afmælistónleikar í tilefni af 10 ára afmæli sveitarinnar.„ Á tónleikunum á Græna hattinum mun sveitin fara í gegnum helstu lög ferilsins, segja sögurnar, flytja nýtt efni, allt sérstaklega útsett fyrir þetta tilefni á afar glæsilegan hátt,“ segir í kynningu.
- Emmsjé Gauti – Græna hattinum, laugardag 12. september kl. 21. „Ég elska að gigga á Græna hattinum. Alltaf jafn sveitt og gott. Ég ætla að leggja allt í það að þetta kvöld verði sturluð upplifun fyrir okkur öll. Ballöður og bangers! Hlakka til,“ segir listamaðurinn í kynningu.

Sycamore Tree fer yfir 10 ára feril sveitarinnar á Græna hattinum á föstudagskvöldið.
Viðburðir
- Ljóðamót 04 – Fornbókaversluninni Svartar bækur í Laxdalshúsi, miðvikudaginn 9. september kl. 20. „Við lesum nokkur vel valin ljóð og hvetjum gesti til þess að koma með ljóð til að deila með hópnum, hvort sem þau eru frumsamin eða eftir aðra höfunda. Öll sem hafa áhuga á ljóðum og bókmenntum eru hvött til þess að mæta og vera með. Virk þátttaka, þar sem gestur kemur sjálfur með ljóð eða fróðleik er mjög velkomin, og allt yfir í að mæta bara til þess að hlusta og njóta,“ segir í kynningu.

Fornbókaverslunin Svartar bækur er flutt í Laxdalshús og þar verður haldið ljóðakvöld í kvöld.
Listsýningar
- Vatnslitahátíð Íslands - Sýningaropnun. Listasafnið á Akureyri fimmtudaginn 10. september kl. 17. Vatnslitahátíðin stendur yfir dagana 10.-13. september og í tengslum við hátíðina verður sýning í Listasafninu sem er opin til 27. september.
- Skrautsteinar 70 pús - Surekha Datye. Sýningaropnun á Amtsbókasafninu á Akureyri, fimmtudaginn 10. september kl. 16. Sýningin stendur til 1. október.
- Lendar – Solveig Thoroddsen. Sýningaropnun í Mjólkurbúðinni föstudaginn 11. september kl. 17-19. Einnig opið 12.-13. september kl. 12-17 og 17.-20. september kl. 12-17.
- Sjálfsástarvírus - Minnisvarði #3 – Katrín Inga Jónsdóttir Hjördísardóttir. Listasafnið á Akureyri. Útilistaverk á svölum safnsins.
- Brúðkaupsveislan – Gluggasýning. Hafnarstræti 88. Sýningin stendur til 17. september 2026.
- Ný aðföng í safneign – Kristín Gunnlaugsdóttir. Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 31. desember 2026.
- Hughrif - Litir - Form I – Valin verk fyrir sköpun og fræðslu. Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 7. mars 2027.
- Í snertingu - Samsýning þriggja listamanna. Listasafnið á Akureyri og Lystigarðurinn á Akureyri. Sýningin stendur til 7. mars 2027.
- Bergmál umbreytingar: Út í garð – Charlotte Søeborg Ohlsen. Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 7. mars 2027.
- Hversdagsland – Baldvin Ringsted. Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 7. mars 2027.
- Opnun ársins – Brák Jónsdóttir. Flóra menningarhús, Sigurhæðum. Sýningin stendur til 10. október 2026.

Björn Bernström er einn þeirra fimm heimsþekktu listamanna sem koma til landsins í tilefni af Vatnslitahátíð Íslands.
Endilega hafðu samband á valur@akureyri.net ef að þú vilt koma þínum viðburði á listann. Hann þarf að vera opinn öllum.