Vatnslitahátíð Íslands hefst í vikunni
Uppselt er á Vatnslitahátíð Íslands, Aurora Watercolor Festival, alþjóðlega hátíð sem hefst á Akureyri vikunni. Ríflega hundrað manns koma til bæjarins vegna viðburðarins, bæði innanlands frá og utan en hátíðin hefst með opnun sýningar á um 90 vatnslitaverkum frá 21 þjóðlandi í Listasafninu á Akureyri fimmtudaginn 10. september. Hátíðin stendur til þriðjudags en sýningin í Listasafninu til 27. september.
„Til landsins koma fimm heimsþekktir listamenn sem hafa helgað ævistarf sitt vatnslitum en þeir eru Björn Bernström frá Svíþjóð, Nicolás Lopez frá Perú, Julia Ustinovich frá Póllandi, Prafull Sawant frá Indlandi og Julia Barminova frá Portúgal. Allt þetta fólk verður með sýnikennslu í Listasafninu fyrir hátíðargesti og heldur einnig námskeið annars staðar í bænum. Uppselt er á námskeið þeirra allra,“ segir í tilkynningu.
Miðar á hátíðina sjálfa seldust upp í síðustu viku en á dagskrá eru, auk sýnikennslu og námskeiða, meðal annars vettvangsferðir til Mývatns og á Svalbarðseyri þar sem málað verður undir berum himni ef veður leyfir. Einnig leiðir pólski málarinn Daria Kudlenkova skissuferðir um miðbæjarsvæðið sem líklega munu vekja athygli vegfarenda. Sjá nánar á heimasíðu hátíðarinnar www.watercolour.is.

Merki Vatnslitahátíðar Íslands, mynd sem Nicolás Lopez málaði á Reykjanesi undir lok síðasta árs.