Fara í efni
Menning

Útitónleikar til styrktar Lystigarðinum

Reynir Gretarsson, vert á LYST í Lystigarðinum, stendur fyrir útitónleikum í garðinum á laugardagskvöldið í þágu góðs málefnis; sú magnaða hljómsveit Moses Hightower stígur á svið og hagnaðurinn rennur allur til Lystigarðsins.
 
Fyrir tveimur árum stóð Reynir fyrir tónleikaröð – hélt ferna tónleika – í sama tilgangi og svo vel tókst til að hann afhenti Lystigarðinum eina milljón króna.
 
„Það er komin hefð fyrir svona viðburðum í garðinum sem mér finnst mjög ánægjulegt. Flestir tónleikar hingað til hafa verið að degi til en núna ætlum við að ljúka íslensku sumartörninni með flottum útitónleikum að kvöldi til; þarna verður notaleg og falleg kvöldstemning þar sem Moses Hightower leikur sína hlýju, sálarríku og einstöku tónlist,“ segir Reynir við akureyri.net. Tónleikarnir hefjast klukkan 20.30 og sérstakur gestur verður Akureyringurinn Kött Grá Pje.
 

Reynir Gretarsson vert á LYST í Lystigarðinum.
Reynir hvetur Akureyringa, og auðvitað alla aðra, til að kaupa miða á tónleikana, bæði til að eiga eftirminnilega stund og styrkja Lystigarðinn; eina fallegustu perlu landsins, eins og hann orðar það.
 
„Lystigarðurinn á Akureyri hefur verið opinn öllum, án endurgjalds, alla tíð. Það eru algjör forréttindi sem við Akureyringar megum ekki taka sem sjálfsögðum hlut. Garðurinn er staður sem við getum notið allt árið um kring og nú getum við lagt okkar af mörkum til að gera hann enn betri,“ segir vertinn.
 
 
Margir hafa átt ánægjustundir í Lystigarðinum í gegnum árin. Boðið var upp á eina slíka þegar Mugison hélt afar vel heppnaða tónleika á fallegum laugardegi í sumar. Mynd: Daníel Starrason