Fara í efni
Menning

Uppskeruhátíðin Nótan í Hofi á laugardag

Nótan, uppskeruhátíð tónlistarskólanna fer fram um allt land um helgina. Svæðistónleikar Nótunnar fyrir Norðurland verða haldnir í Hofi  að þessu sinni, laugardaginn 19. mars kl 14. Fram koma glæsilegir fulltrúar tónlistarskólanna á Norðurlandi og leika fjölbreytta efnisskrá; frá Bach til Emilíönu Torrini auk frumsaminnar tónlistar. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.