Fara í efni
Menning

Ungskáld Akureyrar fyrir „Að drepa ömmu 101“

Eyrún Lilja Aradóttir til vinstri og Brynhildur Þórarinsdóttir með mynd af dóttur sinni Þorbjörgu Þóroddsdóttur sem er um þessar mundir á lýðháskóla í Danmörku.

Eyrún Lilja Aradóttir er Ungskáld Akureyrar 2023. Hún hlaut fyrstu verðlaun í samnefndri ritlistakeppni fyrir verkið Að drepa ömmu 101. Þetta er 11. árið sem Ungskáldaverkefnið er starfrækt og voru úrslit kunngjörð á Amtsbókasafninu í gær.

Verkefnið hefur vaxið og dafnað með hverju árinu og að þessu sinni bárust alls bárust 46 verk í keppnina frá 27 þátttakendum. 

Tvær stúlkur urðu í þremur efstu sætunum. Úrslit urðu sem hér segir; smellið á titlana til að lesa verkin.

1. sæti: Eyrún Lilja Aradóttir – Að drepa ömmu 101

2. sæti: Þorbjörg Þóroddsdóttir – Ég get ekki talað um hafið á ensku

3. sæti: Þorbjörg Þóroddsdóttir – Völundarhús væntinga

Í dómnefndinni sátu Finnur Friðriksson, dósent við Háskólann á Akureyri, Rakel Hinriksdóttir, listamaður og skáld, og Sigríður Albertsdóttir, kennari við Verkmenntaskólann á Akureyri.

Í tilkynningu kemur fram að á þessu ári hafi verið „tvö ritlistakvöld með frábærum leiðbeinendum. Í mars var ritlistakvöld með Svavari Knúti og nú í október með Yrsu Sigurðardóttur, bæði kvöldin hafa ungmenni sótt sér að kostnaðarlausu.“

Í nefnd Ungskálda eru fulltrúar frá Akureyrarstofu, Verkmenntaskólanum á Akureyri, Menntaskólanum á Akureyri, Ungmennahúsinu í Rósenborg og Amtbókasafninu. Við athöfnina á Amtsbókasafninu lék Helga Björg Kjartansdóttir á víólu.

Verkefnið er styrkt af Uppbyggingarsjóði Norðurlands eystra og Akureyrarbæ.