UngDans Akureyri frumsýnir dansverk
Nýr dansflokkur á Akureyri, UngDans Akureyri, stígur á svið í fyrsta sinn á fimmtudagskvöld þegar flokkurinn frumsýnir nýtt dansverk í Deiglunni. Sýningin hefst klukkan 20 og er jafnframt fyrsta skrefið í uppbyggingu nýs vettvangs fyrir ungt danslistafólk á Norðurlandi.
Undanfarnar vikur hafa dansararnir sjö unnið náið með danshöfundinum og dansaranum Ólöfu Ósk Þorgeirsdóttur að þróun verksins. Áhersla hefur verið lögð á samvinnu og fjölbreyttar sköpunaraðferðir þar sem styrkleikar, tækni og reynsla dansaranna sjálfra fá að móta lokaútkomuna. Aðstandendur lýsa verkinu sem leikandi og kraftmiklu þar sem húmor, „groove“ og ólíkir karakterar fá að njóta sín.
Tækifæri fyrir unga dansara
UngDans Akureyri er nýr dansflokkur á vegum Danssetursins. Markmið verkefnisins er að gefa ungum dönsurum tækifæri til að kynnast vinnuferli atvinnudansara og upplifa hvernig dansverk verður til – frá fyrstu hugmyndum og tilraunum að fullbúinni sýningu.
Flokkurinn er ætlaður ungu danslistafólki og er hugmyndin að hann verði ekki aðeins eitt verkefni heldur vettvangur sem geti þróast áfram á næstu árum. Ólíkir danshöfundar geti þá komið að nýjum verkefnum og ungir dansarar fengið tækifæri til að skapa, koma fram og kynnast ólíkum vinnuaðferðum.
Í fyrsta verkefninu taka þátt Angela Íris Einarsdóttir, Anna Sunna Árnadóttir, Auður Gná Sigurðardóttir, Bjarklind Ásta Brynjólfsdóttir, Emelie Renzel, Kristjana Bella Kristinsdóttir og Telma Marý Arinbjarnardóttir.
Verkefnið hlaut styrk úr Menningarsjóði Akureyrarbæjar. Aðgangseyrir að frumsýningunni er 1.500 krónur og hægt er að greiða með peningum eða millifærslu.