Menning
Úlfur Logason, Ensími, Sú Ellen og Á.S.T.
23.03.2026 kl. 13:00
Hvaða menningarviðburðir eru í boði á svæðinu þessa vikuna? Akureyri.net skellir í samantekt í byrjun hverrar viku, þar sem lesendur geta séð hvað verður á seyði og penslað inn í dagatalið.
Listasýningar
- Þrjár opnanir í Listasafninu á Akureyri 28. mars:
- Saga Íslands: 2. hluti - Eiríkur Páll Sveinsson prentaði út internetið í árdaga þess.
- Úlfur Logason - Guð launi þér – Myndlistarsýning.
- Hughrif - Litir - Form I - Valin verk fyrir sköpun og fræðslu.
- Opnun: Archives of Akureyri - Erin Gericke. Gestalistakona í Deiglunni sýnir verk innblásin af bókmenntum og einblínir á íslenska fugla. Aðeins opið helgina 27.-29. mars. Opnun föstudag 27. mars kl. 17:00.
- Á.S.T. Ljóðasýning - Arnrún Halla Arnórsdóttir sýnir ljóð í Mjólkurbúðinni. Opið til 30.mars.
- Sköpun bernskunnar 2026 – Listasafnið á Akureyri. Samstarf listakonunnar Sunnu Svavarsdóttur og barna í Tröllaborgum, Brekkuskóla, Glerárskóla, Naustaskóla og Oddeyrarskóla.
- Guðmundur Ármann: Aðflæði – Yfirlitssýning listamannsins, sem spannar 65 ára feril. Sýnt á Listasafninu á Akureyri, en sýningin stendur til 4. maí 2026.
- Björk Viggósdóttir - Hreyfing fyrir sjón / Movement for vision – Sýning á Listasafninu á Akureyri. Stendur til 3. maí 2026.
- Undir berum himni - Jóhannes Sveinsson Kjarval. Sýning á teikningum og skissum Jóhannesar Sveinssonar Kjarvals á Listasafninu á Akureyri. Sýningin stendur til 17. maí 2026.
Leiksýningar
- Birtíngur hjá Leikfélagi Akureyrar. Samkomuhúsið, fimmtudag 26. mars og laugardag 28. mars kl. 20.00.
- Átta konur - Leikfélag Hörgdæla að Melum. Föstudaginn 27. mars og laugardag 28. mars kl. 20.00.
- Tom, Dick & Harry - Freyvangsleikhúsið. Næst síðasta sýningarhelgi. Sýningar föstudaginn 27. mars og laugardag 28. mars kl. 20.00.

Þreföld opnun á Listasafninu á laugardaginn kemur: Úlfur Logason, Saga Íslands: 2.hluti og Hughrif. Myndir: listak
Tónleikar
- Sú Ellen á Græna hattinum - Útgáfutónleikar. Föstudagskvöldið 27. mars kl. 21:00.
- Ensími á Græna hattinum - 30 ára starfsafmæli hljómsveitarinnar. 28. mars kl. 21:00.
Viðburðir
- Þriðjudagsfyrirlestur á Listasafninu - Hildigunnur Birgisdóttir. Þriðjudag 17. mars kl. 16:15 - 17.
- Star Wars PubQuiz með Dandra á r5 - Fimmtudagskvöldið 26. mars kl. 21:00.
- PubQuiz með Villa Vandræðaskáldi á LYST - Laugardaginn 28. mars kl 20:30-23:00.
- Prjónabíó á Amtinu - Sköpun og slökun. Fimmtudagskvöldið 26. mars kl. 19:30-22:00.
- Borðspilakvöld eru alla þriðjudaga á Amtsbókasafninu kl. 17.00. Myndarlegt úrval borðspila er á safninu, og bæði hægt að nota þau eða koma með sín eigin. Öll velkomin.
- Ritfangar hittast annan hvern þriðjudag á Amtsbókasafninu kl. 17-18.30. Sesselía Ólafs heldur utan um hópinn, en öll eru velkomin sem hafa áhuga á skapandi skrifum. 24. mars er næsti hittingur.
- Pabbapíla á Verksmiðjunni - Alla þriðjudaga í vetur verður pabbapíla, kostar ekki neitt og pílur fyrir þá sem ekki eiga. Á milli 18 - 22.
- Íslenskuþjálfun Rauða krossins á Amtsbókasafninu - Alla fimmtudaga frá 16.30 til 18.00 er boðið upp á íslenskuspjall fyrir öll sem vilja bæta sig í íslensku í góðum félagsskap.
- Salsakvöld og ókeypis prufutími í salsa – Vamos, fimmtudaginn 12. mars kl. 20-22.30. Öll velkomin.
Endilega hafðu samband á rakel@akureyri.net ef að þú vilt koma þínum viðburði á listann. Hann þarf að vera opinn öllum.