Menning
Úlfar og hundar - smiðjur og söngur
10.06.2026 kl. 10:00
Hvaða menningarviðburðir eru í boði á svæðinu þessa vikuna? Akureyri.net skellir í samantekt í byrjun hverrar viku, þar sem lesendur geta séð hvað verður á seyði og penslað inn í dagatalið.
Tónleikar
- Hreimur – Græna hattinum, fimmtudag 11. júní kl. 21. „Öll mín bestu lög og það sem okkur dettur í hug,“ segir í kynningu.
- Úlfur Úlfur – Græna hattinum, föstudag 12. júní kl. 21 og laugardag 13. júní kl. 21. „Úlfarnir eru í BANASTUÐI eftir stórtónleika í Austurbæjarbíói. Fullt af lögum, mikið trall og mikið gaman,“ segir í kynningu.
- Söngsalur MA – Græna hattinum, mánudag 15. júní kl. 21. Jónsi, Sigurður Helgi konsertmeistari og Villi vandræðaskáld halda Söngsal fyrir júbílanta MA. Viðburður sem enginn sannur MA-ingur má missa af. Söngsalur eins og hann gerist bestur.

Hreimur verður á Græna hattinum á fimmtudagskvöld.
Viðburðir
- Skoðum hjólin með Skíðaþjónustunni – Miðvikudaginn 10. júní kl. 15-17 við Amtsbókasafnið. Hjólaðu á safnið og fáðu ráðgjöf með stöðuna á hjólinu þínu frá fagfólki, pumpaðu í dekkin, þvoðu hjólið þitt eða komdu bara og prufaðu rafmagnshjól frá Skíðaþjónustunni.
- Barna- og fjölskylduferð FFA að Steinmönnum – Fimmtudaginn 11. júní kl. 17. Mæting á bílastæðið að Hömrum og gengið upp að skátaskálanum Gamla. Þaðan er haldið áfram eftir stikaðri leið að Steinmönnum. Þátttaka ókeypis.
- Hundakvöld í Listasafninu – Fimmtudaginn 11. júní kl. 19-21. Hundar boðnir velkomnir í sérstaka kvöldopnun ásamt eigendum sínum. Ókeypis inn fyrir eigendur í fylgd hunda. Léttar veitingar í boði fyrir fjórfætlinga og fyrstu gestir fá óvæntan glaðning.
- Sumarsmiðjur á Amtsbókasafninu fyrir 7-12 ára – Dagana 10.-19. júní kl. 9-11. Amtsbókasafnið á Akureyri býður krökkum á aldrinum 7- 12 ára að koma á safnið og nýta ímyndunaraflið í allskonar skemmtilegum smiðjum. Smiðjurnar eru á milli klukkan 9 og 11 og er krökkunum frjálst að koma og fara að vild allt eftir áhuga og úthaldi.
- Íslenskuþjálfun Rauða krossins á Amtsbókasafninu - Alla miðvikudaga og fimmtudaga frá 16.30 til 18.00 út júní er boðið upp á íslenskuspjall fyrir öll sem vilja bæta sig í íslensku í góðum félagsskap.

Kvöldopnun verður í Listasafninu á fimmtudagskvöld fyrir hunda og eigendur þeirra.
Listsýningar
- Rætur - Listvinnustofa fyrir 7-9 ára börn – Flóra, Sigurhæðum, fimmtudaginn 11. júní og föstudaginn 12. júní kl. 9-12. Tveggja daga vinnustofa sem lýkur með sýningu fyrir aðstandendur og gesti Sigurhæða. Skráning á flora.akureyri@gmail.com.
- Listamenn í vinnslu – Sýningaropnun í Deiglunni, föstudaginn 12. júní kl. 20. Mahaut Ingiríður Matharel sumarlistamaður, Hafey Hvítfeld og Aðalheiður Jóna Kolbeins Liljudóttir halda málverkasýningu í Deiglunni. „Þessi sýning er algjört bland í poka. Þetta er fyrsta sjálfstæða listasýningin okkar og ákváðum við því að leyfa okkur að sýna hverjar við erum án þess að festa okkur um of í stærra þema. Þó reyndum við að hafa svolítið samræmi og notuðumst við við þrjá meginliti: bláan, bleikan og grænan, í verkunum okkar,“ segir í kynningu. Sýningin er opin helgina 12.-14. júní og helgina 19.-21. júní.
- Logi Gautason – Ég ætla að rotna. Leyni, Hafnarstræti 95. Á sýningunni má sjá ný málverk unnin í akríl á striga. Verk Loga sækja jafnt í hið hversdagslega sem hið dularfulla og skapa myndheim þar sem ólíkar hugmyndir, stemningar og vísanir rekast saman. Sýningin er opin til 19. júní
- Hédna – Menningarhúsinu Hofi. Sýning sextíu og eins félaga í Myndlistarfélaginu á Akureyri. Viðfangsefnin fjölbreytt þar sem tekist er á við tilveru í flóknum heimi með aðferðum myndlistar. Sýniningin er opin til 16. ágúst 2026.
- Sjálfsástarvírus - Minnisvarði #3 – Katrín Inga Jónsdóttir Hjördísardóttir. Listasafnið á Akureyri. Útilistaverk á svölum safnsins.
- Zimoun – Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 6. september 2026.
- Saga Íslands: 2. hluti – Eiríkur Páll Sveinsson. Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 16. ágúst 2026.
- Guð launi þér – Úlfur Logason. Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 16. ágúst 2026.
- Hughrif - Litir - Form I – Valin verk fyrir sköpun og fræðslu. Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 7. mars 2027.
- Sýning um heilagan fugl – Örlygur Kristfinnsson. Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 6. september 2026.
- Andlegar verðmætavindur Magnúsar – Magnús Helgason. Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 6. september 2026.
- S-I-L-I-C-A-0-3 – Hulda Rós Guðnadóttir. Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 6. september 2026.
- Ný aðföng í safneign – Kristín Gunnlaugsdóttir. Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 6. september 2026.
- Opnun ársins – Brák Jónsdóttir. Flóra menningarhús, Sigurhæðum. Sýningin stendur til 10. október 2026.

Á föstudagskvöld opna þær Mahaut Ingiríður Matharel, Hafey Hvítfeld og Aðalheiður Jóna Kolbeins Liljudóttir málverkasýningu í Deiglunni.
Endilega hafðu samband á valur@akureyri.net ef að þú vilt koma þínum viðburði á listann. Hann þarf að vera opinn öllum.