Fara í efni
Menning

Tónlistin úr Benedikt búálfi komin á Spotify

Tónlistin úr söngleiknum Benedikt búálfi, sem nú er á fjölunum hjá Leikfélagi Akureyrar, er komin í heild á Spotify. Sögumaður plötunnar er Karl Ágúst Úlfsson, sem gerði einmitt leikgerðina og samdi söngtextana í verkinu.

Tónlistin er spiluð af 40 manna hópi úr Sinfóníuhljómsveit Norðurlands. Eins og áður er Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson tónlistarstjóri en gaman er að segja frá því að hann gerði fimm ný lög fyrir uppsetningu LA.

Söngleikurinn er samstarf Leikfélags Akureyrar og Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands. Með hlutverk Benedikts búálfs fer Árni Beinteinn Árnason. Aðrir leikarar eru Þórdís Björk Þorfinnsdóttir, Björgvin Franz Gíslason, Hjalti Rúnar Jónsson, Vala Guðnadóttir, Birna Pétursdóttir og Kristinn Óli Haraldsson, betur þekktur sem Króli. Söngleikurinn er sýndur í Samkomuhúsinu, vegna samkomutakmarkana hefur verið hlé á sýningum en þær hefjast að nýju um næstu helgi.