Menning
Tónlistarveisla: Gospel, Grasrót og Græni
29.05.2026 kl. 11:00
Að vanda verður boðið upp á tónleika af ýmsum toga á Akureyri um helgina. Meðal annars verður tónlistarhátíðin Grasrót haldin í Hlöðunni við Litla-Garð, Gospelkór Glerárkirkju verður með vortónleika sína og að sjálfsögðu má ganga að tónleikum á Græna hattinum vísum.
- Föstudagur 29. maí og laugardagur 30. maí kl. 20 – Hlaðan við Litla-Garð: Á tónlistarhátíðinni Grasrót verður boðið upp á tólf tónlistaratriði. Um er að ræða sýnishorn af því besta sem hin fjölbreytta og frjóa tónlistarsena Norðurlands hefur upp á að bjóða, ásamt því sem góðir gestir koma einnig við sögu.

Dream The Name trylltu lýðinn á Grasrótartónleikunum í fyrra og stemmningin verður væntanlega ekki síðri í ár.
- Föstudagur 29. maí kl. 21 - Græni hatturinn: U2 heiðurstónleikar. Öll bestu lög U2, einnar stærstu hljómsveitar rokksögunnar, í flutningi einvalaliðs. Hljómsveitin var stofnuð árið 1976 og fagnar því 50 ára afmæli á árinu 2026.

Bono og félagar í U2 mæta ekki í eigin persónu á Græna hattinn en Magni og félagar gera tónlist sveitarinnar góð skil.
- Laugardagur 30. maí kl. 21 - Græni hatturinn: Einhver ástsælasta hljómsveit landsins, Hjálmar, stígur á stokk á einstökum tónleikum á Græna hattinum og flytur öll sín bestu lög.

Hjálmar verða á Græna hattinum á laugardagskvöldið.
- Sunnudagur 31. maí kl. 16 – Glerárkirkja: Vortónleikar Gospelkórs Glerárkirkju. Hressir og skemmtilegir tónleikar, þar sem kraftur, gleði og falleg tónlist fá að njóta sín.

Gospelkór Glerárkirkju. Fremstar eru Helga Hrönn Óladóttir stjórnandi kórsins og Anna Skagfjörð, einsöngvari.