Tónlistarsýning um George Michael í Hofi
Aðdáendur George Michael geta rifjað upp mörg af þekktustu lögum söngvarans þegar tónlistarsýningin Celebrating George Michael verður flutt í Menningarhúsinu Hofi föstudaginn 20. nóvember. Sýningin verður einnig sett upp í Hörpu í Reykjavík laugardaginn 21. nóvember.
Í aðalhlutverki er Steve Mitchell, sem flytur lög George Michael og leitast við að endurskapa bæði tónlistina og sviðsframkomu hans á ólíkum tímabilum ferilsins, og sérstakur gestur á tónleikunum er Dave West, fyrrverandi bassaleikari Wham!, sem starfaði með George Michael og Andrew Ridgeley á fyrstu upptökum á Wham Rap, Careless Whisper og Club Tropicana.
Steve Mitchell hefur getið sér gott orð fyrir túlkun sína á tónlist söngvarans. „Flutningur Steve Mitchell, sem er almennt álitinn einn besti flytjandi laga George Michael í heiminum, er kraftmikill og tilfinningaríkur, þar sem hann endurskapar ekki einungis lögin heldur einnig tilfinninguna fyrir flutningi Gerge Michael á sviðinu á mismunandi tímabilum, sem sýnir tímalausa afleifð eins besta popptónlistarmanns sögunnar,“ segir í kynningu á viðburðinum.

Steve Mitchell er að sögn almennt álitinn einn besti flytjandi laga George Michael í heiminum.
Með í för er fjögurra manna hljómsveit tónlistarmanna sem hafa meðal annars starfað með listamönnum á borð við Nile Rodgers & Chic, Brian May, Simply Red og Kylie Minogue. Að auki koma tveir bakraddasöngvarar fram með hópnum.
Frá Careless Whisper til Last Christmas
Á efnisskránni eru lög sem spanna um 35 ára tónlistarferil George Michael, bæði frá tíma hans með Wham! og sólóferlinum. Þar má nefna vinsæl danslög á borð við Wake Me Up Before You Go-Go, Faith og Freedom! ’90, og frægar ballöður á borð við Careless Whisper, Father Figure og One More Try. Jólalagið sívinsæla Last Christmas verður einnig á dagskrá og ætti að koma gestum í rétta jólaskapið.
Tónleikasýningin hefur verið sett upp í Bretlandi og víðar í Evrópu og fengið frábærar viðtökur, að sögn tónleikahaldara. Nú gefst íslenskum tónleikagestum kostur á að heyra lög George Michael flutt á sviði í Hofi og Hörpu.
Miða á sýninguna má nálgast á tix.is.