Fara í efni
Menning

Tónlist, myndlist, dans og uppistand

Hvaða viðburðir á sviði menningar og mannlífs eru í boði á svæðinu þessa vikuna? Akureyri.net skellir í samantekt í byrjun hverrar viku, þar sem lesendur geta séð hvað verður á seyði og penslað inn í dagatalið. Listinn verður uppfærður jafnóðum og fréttist af nýjum viðburðum.

Listasumar á Akureyri stendur nú sem hæst, með alls konar viðburðum um allan bæ fyrir fólk á öllum aldri. Ókeypis er á alla viðburði Listasumars.

Listasumar á Akureyri

  • Alla viðburði Listasumars má finna á þessari síðu en hér að neðan er stiklað á stóru.
  • Myndasögusmiðja fyrir 8-12 ára – Amtsbókasafninu, þriðjudaginn 30. júní kl. 13-14:30. Vinnustofa sérhæfð fyrir yngri teiknara sem eru að taka sín fyrstu skref í hinum spennandi heimi myndasögugerðar.
  • Manga-smiðja fyrir 12-16 ára – Amtsbókasafninu, þriðjudaginn 30. júní kl. 16-17:30. Höfundurinn Atla Hrafney fer með krökkunum í töfraheima persónusköpunar og hvernig það hefur áhrif á hönnun manga.
  • Söngvaskáld í Minjasafni – Minjasafnskirkjunni, þriðjudaginn 30. júní kl. 14 og Davíðshúsi föstudaginn 3. júlí kl. 14. Hákon Geir Snorrason flytur íslensk dægurlög. Hákon Geir er þrettán ára gamall og syngur og spilar á gítar. Á efnisskránni eru bæði frumsamin lög og textar auk þekktra og vinsælla laga eftir íslenska listamenn.
  • Miðvikudjass á Majó – Majó, Hofi, miðvikudaginn 1. júlí kl. 16-17. Michael Weaver og Elías Dýrfjörð skipa djassdúettinn Gangverk. Michael leikur á tenórsaxófón en Elías á kontrabassa. Þeir félagarnir hafa spilað saman á bæði klassískum og rytmískum grundvelli en þetta er í fyrsta sinn sem þeir koma fram sem jassdúett. Þeir munu leika fjölbreytt lög í bæði latin og swing stíl.
  • Húllað inn í hamingjuna – Þingvallastræti 8, föstudaginn 3. júlí kl. 17. Fjölmiðlakonan Snæfríður Ingadóttir fer yfir málin á 15 mínútum í kómísku uppistandi sem segir meira um hamingjuna en öll sjálfshjálparnámskeið sem þú hefur farið á.
  • Uppistandið Á þetta að vera fyndið? – Vitanum, föstudaginn 3. júlí kl. 20. Hópur heimafólks tekur hljóðnemann og býður gestum upp á kvöld þar sem við hlæjum saman að lífinu, hversdagsleikanum, samböndum, samfélaginu og öllu því sem verður aðeins bærilegra þegar maður má gera grín að því.
  • Styrktartónleikar í Sæborg – Sæborg, Hrísey, föstudaginn 3. júlí kl. 20:30. Heimir Árna verður með Bubba tribute-tónleika og ball til styrktar uppbyggingu Sæborgar.
  • Margrét og Páll - söngljóð að sumri – Akureyrarkirkju, sunnudaginn 5. júlí kl. 17. Opnunartónleikar fertugasta afmælisárs Sumartónleika í Akureyrarkirkju. Margrét Árnadóttir sópran og Páll Barna Szabó píanóleikari flytja sönglög eftir Fanny Mendelssohn, Clöru Schumann, Josephine Lang og Jórunni Viðar, auk þess að frumflytja nýtt sönglag eftir Kristínu Þóru Haraldsdóttur.
  • Yfir Mat – Start Stúdíó, Gránufélagsgötu 4, mánudaginn 6. júlí kl. 15-17. Listakonan Unnur Stella Níelsdóttir býður almenningi að taka þátt í skapandi vinnustofu. Yfir Mat er þátttökumiðað listaverkefni þar sem þátttakendur koma saman og mála hluti tengda mat, borðhaldi og samveru.

Djassdúettinn Gangverk leikur á Majó í Hofi á miðvikudaginn.

Tónleikar

  • Inspector Spacetime – Leyni, Hafnarstræti, fimmtudag 2. júlí. kl. 21. „Frá því Inspector Spacetime steig fyrst fram á sjónarsviðið árið 2020 hefur sveitin verið stöðugur þátttakandi í íslensku tónlistarlífi. Með því að blanda saman dans­tónlist, poppi og raftónlist hafa þau skapað girnilega uppskrift sem fær fólk óhjákvæmilega til að hreyfa sig,“ segir í kynningu.
  • Hundur í óskilum – Græna hattinum, fimmtudag 2. júlí kl. 21. „Hundur í óskilum á Græna hattinum - aukinn og endurbættur. Flytur frumsamdar romsur í bland við afbakaðar ábreiður,“ segir í kynningu.
  • Stjórnin – Græna hattinum, föstudag 3. júlí kl. 21. Stjórnin með Siggu Beinteins og Grétar Örvars í broddi fylkingar flytur öll sín vinsælustu lög gegnum tíðina eins og þeim er einum lagið.
  • Stjórnin – Græna hattinum, laugardag 4. júlí kl. 21. Stjórnarliðum dugar ekki eitt kvöld, því sveitin mætir aftur á laugardagskvöldið og heldur uppi stuðinu.
  • Mannfólkið breytist í slím – Slímstöðinni, Laufásgötu 1, laugardag 4. júlí kl. 20. „Mannfólkið breytist í slím 2026 er innan seilingar. Þriðju og síðustu upphitunartónleikar umbreytingarinnar fara fram í höfuðstöðvum MBS, Slímstöðinni 4. júlí!“ segir í kynningu.

Hundur í óskilum, aukinn og endurbættur, verður á Græna hattinum á fimmtudagskvöld.

Viðburðir

  • Styrktarsýning TEAM DSA – Íþróttahöllinni, þriðjudaginn 30. júní kl. 18. „Keppnislið DSA fer til Dublin í sumar á Dance World Cup. Liðið keppir með 12 atriði og munum við sýna þau öll,“ segir í kynningu.

Keppnislið DSA sýnir í Íþróttahöllinni atriðin sem farið verður með á Dance World Cup.

Listsýningar

Í tilefni sextugsafmælis síns verður Jonna með sýningu í Deiglunni frá föstudegi til sunnudags.


Endilega hafðu samband á valur@akureyri.net ef að þú vilt koma þínum viðburði á listann. Hann þarf að vera opinn öllum.