Fara í efni
Menning

Tónleikasýningu á Hárinu frestað

Tónleikasýningu á söngleiknum Hárinu, sem átti að vera í Hofi næsta laugardag, hefur verið frestað vegna sóttvarnaraðgerða. Ný dagsetning hefur ekki verið ákveðin en tilkynnt verður um hana um leið og ákvörðun liggur fyrir, að sögn aðstandenda sýningarinnar.

Allir miðar gilda áfram á nýrri dagsetningu sýningarinnar. Kjósi miðaeigendur að fá miðana sína endurgreidda er þeim bent á að hafa samband við miðasölu MAK eftir 16. ágúst.