Fara í efni
Menning

Tónleikar til heiðurs Ennio Morricone

Tónleikar til heiðurs ítalska kvikmyndatónskáldinu, Ennio Morricone, einum þeim allra þekktasta í bransanum, fara fram í Listasafninu á Akureyri á laugardaginn, 30. maí.

Á tónleikunum flytja þau Daniele Basini, Jón Þorsteinn Reynisson og Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir tónlist Morricone í útsetningum Basini og má þar m.a. heyra tónlist úr Nuovo Cinema Paradiso, Once Upon a Time in America og nokkrum góðum spaghettí-vestrum. Myndskeiðum úr bíómyndum Sergios Leone og Giuseppes Tornatore verður varpað á meðan á tónleikunum stendur.

Tónleikarnir hefjast klukkan 17.00 í sal 10. Miðaverð er kr. 3.000, en nemendur úr Tónlistarskólanum og Myndlistaskólanum fá frítt inn. Verkefnið er styrkt af Uppbyggingarsjóði Norðurlands eystra, Listasafninu á Akureyri og Det italienske kulturinstitutt i Oslo.