Fara í efni
Menning

Tónleikar Orkester Norden á laugardag

Hljómsveitin á æfingu í Hofi í dag.

Alþjóðlega ungmennahljómsveitin Orkester Norden heldur tónleika í Hamraborg í Hofi á Akureyri laugardaginn 25. júlí klukkan 16. Tónleikarnir marka lok átta daga æfingabúða sem haldnar eru á Akureyri og er þetta í fyrsta sinn sem verkefnið fer fram á Íslandi.

Orkester Norden er eitt af norrænum samstarfsverkefnum Lionshreyfingarinnar og hóf göngu sína fyrir um 40 árum. Á hverju ári er hljómsveitin skipuð 40 til 80 ungum hljóðfæraleikurum frá Norðurlöndum og Eystrasaltsríkjunum, á aldrinum 15 til 25 ára, sem valdir eru til þátttöku að loknu ströngu inntökuferli.

Í æfingabúðunum á Akureyri hafa þátttakendur unnið undir leiðsögn reyndra norrænna tónlistarmanna. Meðal íslenskra leiðbeinenda eru Björg Brjánsdóttir, flautuleikari og tónskáld, sem leiðir tréblásaradeildina, og Ragnheiður Ingunn Jóhannsdóttir, sem nýverið lauk námi í hljómsveitarstjórn við Tónlistarháskólann í Osló og gegnir hlutverki aðstoðarhljómsveitarstjóra. Listrænn stjórnandi er Ilkka Uurtimo, sellóleikari við Sinfóníuhljómsveitina í Lahti og aðalhljómsveitarstjóri Orkester Norden 2026 er Jan Söderblom.

Þrír íslenskir hljóðfæraleikarar taka þátt í hljómsveitinni að þessu sinni. Það eru Hanna Kristín Stefánsdóttir víóluleikari, Helga Björg Kjartansdóttir víóluleikari og Karen Jóna Steinarsdóttir flautuleikari. Á efnisskránni eru verk eftir fjögur af þekktustu tónskáldum Evrópu: Franz Schubert, Igor Stravinsky, Carl Nielsen og Ludwig van Beethoven.

Aðstandendur segja mikilvægt fyrir ungu tónlistarmennina að fá tækifæri til að leika fyrir áheyrendur og hvetja unnendur sinfónískrar tónlistar til að sækja tónleikana. Ekki er um hefðbundna miðasölu að ræða en gestum er boðið að styðja verkefnið með frjálsu framlagi sem samsvarar miðaverði, 3.500 krónum.

Styrktarreikningur: Bankanúmer 0544-14-554053 og kennitala 640572-0869 – Skýring: Orkester Norden.