Tónleikar, leikhús, salsa og vídeódans
Hvaða viðburðir á sviði menningar og mannlífs eru í boði á svæðinu þessa vikuna? Akureyri.net skellir í samantekt í hverri viku, þar sem lesendur geta séð hvað verður á seyði og penslað inn í dagatalið.
Í þessari viku má nefna að á sunnudaginn verða tvennir tónleikar í Hofi í minningu Ingimars Eydal og kvöldið áður verða árlegir hausttónleikar Nýdanskra á sama stað. Á sama tíma blása Drykkir innbyrðis til útgáfutónleika á Græna hattinum í tilefni nýútkominnar plötu. Og árlegir Hrekkjavökutónleikar blásarasveita Tónlistarskólans á Akureyri verða í Hofi á miðvikudag. Auk fjölbreyttra tónleika í vikunni heldur vídeódanshátíðin Boreal Screendance Festival áfram með ýmsum viðburðum og Freyvangsleikhúsið og Leikfélag Akureyrar verða bæði með tvær sýningar á leikverkum sínum. Og svo er hægt að dansa salsa á Vamos.
Tónleikar
- Hrekkjavökutónleikar – Menningarhúsinu Hofi, miðvikudag 28. október kl. 18. Hinir árlegu Hrekkjavökutónleikar blásarasveita TónAk. Frumflutt verður glæný og ógnvekjandi hrekkjavökusaga sem vefur sig utan um tónlist blásarasveitanna. „Hræðilegar en þó metnaðarfullar skreytingar prýða draugahúsið Hof og eru tónleikarnir ómissandi upplifun til að komast í hrekkjavökugírinn,“ segir í kynningu.
- Drykkir innbyrðis – Græna hattinum, laugardag 31. október kl. 21. Formlegir útgáfutónleikar nýrrar plötu. Drykkir innbyrðis var stofnuð á Akureyri í ársbyrjun 1986, tók þátt í Músíktilraunum í apríl það ár og hafnaði í öðru sæti. Hljómsveitin starfaði til ársins 1990, var áberandi þessum tíma en lagðist þá í dvala allt þar til að sú hugmynd kviknaði á seinasta ári að taka aftur upp þráðinn.
- Nýdönsk – Menningarhúsinu Hofi, laugardag 31. október kl. 21. Árlegir hausttónleikar sveitarinnar. „Á tónleikunum mun Nýdönsk leika sín þekktustu lög auk þess sem nýjasta efnið slæðist með,“ segir í kynningu.
- Ingimar Eydal 90 ára – Menningarhúsinu Hofi, sunnudag 1. nóvember kl. 16 og 20. Tónlistardagskrá í tilefni af því að Ingimar Eydal hefði orðið 90 ára en hljómsveit hans var um árabil ein vinsælasta danshljómsveit landsins. „Söngvararnir Sigríður Beinteinsdóttir, Stefán Hilmarsson, Matthías Matthíasson og Bjarni Arason flytja þekktustu lögin úr lagasafni Ingimars Eydal og félaga og má þar nefna: Í sól og sumaryl, Magga, Sumarást, Vor í Vaglaskógi, Á sjó og Hún er svo sæt sem dæmi. Með þeim leikur frábær hljómsveit undir stjórn Jóns Ólafssonar,“ segir í kynningu. Sérstakir gestir eru fyrrum söngvarar hljómsveitarinnar þau Inga Eydal, dóttir ingimars heitins, og Grímur Sigurðsson.

Útgáfutónleikar Drykkja innbyrðis verða á Græna hattinum á laugardagskvöldið.
Viðburðir
- Salsa & bachata danskvöld – Vamos, fimmtudag 29. október kl. 20-22. SALSA NORTH í samstarfi við VAMOS býður Akureyringum og nærsveitungum upp á danskvöld annan hvern fimmtudag í vetur. „Þetta danskvöld verður með Halloween þema. Endilega mæta í búning þau sem vilja!“ segir í kynningu.
- Útsynningur – Leiksýning Freyvangsleikhússins í Freyvangi. Sýnt föstudag 30. október kl. 20 og laugardag 31. október kl. 20.
- Fasteignamartröðin – Leiksýning Leikfélags Akureyrar í Samkomuhúsinu. Sýnt föstudag 30. október kl. 20 og laugardag 31. október kl. 20.

Leikfélag Akureyrar sýnir Fasteignamartröðina á föstudag og laugardag.
Listsýningar
- Hausar og andlitsmyndir – Aðalsteinn Þórsson. Leyni, Hafnarstræti. Aðalsteinn sýnir myndir frá ýmsum tímum á ferlinum sem eru ólíkar í efnistökum og aðferðum en eiga það sameiginlegt að vera af höfðum manna eða vætta. Sýningin stendur til 1. nóvember.
- Boreal Screendance Festival – Alþjóðleg vídeódanshátíð þar sem 16 videódansverk frá 13 löndum verða sýnd víða í Listagilinu næstu vikur.
- Öðruvísí orð – Rakel Hinriksdóttir. Bókasafn Háskólans á Akureyri. Sýningin stendur til 2. nóvember og er opin á afgreiðslutíma safnsins.
- Sjálfsástarvírus - Minnisvarði #3 – Katrín Inga Jónsdóttir Hjördísardóttir. Listasafnið á Akureyri. Útilistaverk á svölum safnsins.
- Ný aðföng í safneign – Kristín Gunnlaugsdóttir. Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 31. desember 2026.
- Svartur blettur – Logi Bjarnason. Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 10. janúar 2027.
- Í skugga átaka – Samsýning. Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 10. janúar 2027.
- 1/3 söngskemmtun, saumur, ló og þvottaleiðbeiningar – Berglind Jóna Hlynsdóttir. Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 10. janúar 2027.
- Hughrif - Litir - Form II – Valin verk fyrir sköpun og fræðslu. Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 7. mars 2027.
- Í snertingu – Samsýning þriggja listamanna. Listasafnið á Akureyri og Lystigarðurinn á Akureyri. Sýningin stendur til 7. mars 2027.
- Bergmál umbreytingar: Út í garð – Charlotte Søeborg Ohlsen. Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 7. mars 2027.
- Hversdagsland – Baldvin Ringsted. Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 7. mars 2027.

Vídeódanshátíðin Boreal Screendance Festival 2026 heldur áfram í þessari viku.
Endilega hafðu samband á valur@akureyri.net ef að þú vilt koma þínum viðburði á listann. Hann þarf að vera opinn öllum.