Fara í efni
Menning

Tónleikar, dansiball og listasmiðjur

Hvaða viðburðir á sviði menningar og mannlífs eru í boði á svæðinu þessa vikuna? Akureyri.net skellir í samantekt í byrjun hverrar viku, þar sem lesendur geta séð hvað verður á seyði og penslað inn í dagatalið. Listinn verður uppfærður jafnóðum og fréttist af nýjum viðburðum.

Í þessari viku ber hæst að Listasumar á Akureyri hefst fimmtudaginn 25. júní og stendur fram í miðjan júlí, með alls konar viðburðum um allan bæ fyrir fólk á öllum aldri. Ókeypis er á alla viðburði Listasumars.

Listasumar á Akureyri

  • Alla viðburði Listasumars má finna á þessari síðu en hér að neðan er stiklað á stóru.
  • Por el momento – Lystigarðinum, fimmtudaginn 25. júní kl. 16:30. Litrík fjölskyldusýning þar sem töfrar, fljúgandi hlutir, óvæntar umbreytingar og leikandi húmor skapa heillandi upplifun fyrir áhorfendur á öllum aldri. Eitis Magia, götulistamaður. Hann verður einnig framan við Akureyri Backpackers kl. 20 og hitar upp fyrir dansiballið í göngugötunni.
  • Dansiball – Göngugötunni, fimmtudaginn 25. júní kl. 20. Gilfélagið á Akureyri býður Akureyringum og öðrum gestum upp í dans og fjör við upphaf Listasumars 2026, þar sem göngugötunni okkar verður breytt í dansgólf. Magni, Erna og co. spila fyrir dansi.
  • Söngvaskáld í Minjasafni – Minjasafnið á Akureyri, föstudaginn 26. júní kl. 14. Hákon Geir Snorrason flytur íslensk dægurlög. Hákon Geir er þrettán ára gamall og syngur og spilar á gítar. Á efnisskránni eru bæði frumsamin lög og textar auk þekktra og vinsælla laga eftir íslenska listamenn.
  • chEMOtherapy – Myndlistarsýning í Kaktus, Listagili, föstudaginn 26. júní til sunnudags 28. júní. Marz Þurý sýnir stafrænar teikningar, Emo og Myspace style. Sýningin er opin föstudag kl. 15-18, laugardag og sunnudag kl. 12-16.
  • Yfir Mat – Start Stúdíó, Gránufélagsgötu 4, föstudaginn 26. júní og laugardaginn 27. júní kl. 15-17. Listakonan Unnur Stella Níelsdóttir býður almenningi að taka þátt í skapandi vinnustofu. Yfir Mat er þátttökumiðað listaverkefni þar sem þátttakendur koma saman og mála hluti tengda mat, borðhaldi og samveru.
  • Opnar listasmiðjur – Þúfu 46, Gránufélagsgötu 46. Laugardag 27. júní og sunnudag 28. júní kl. 13-17. Fjölbreyttar opnar listasmiðjur fyrir börn og foreldra. Listamenn með vinnustofur í Þúfu 46 leiðbeina foreldrum og börnum við listsköpun. Myndlist - ljósmyndun - leirmótun - teikning - o.fl.

Hákon Geir Snorrason kemur fram í Minjasafninu á föstudaginn.

Tónleikar

  • Kvartett Scott McLemore – Græna hattinum, fimmtudag 25. júní kl. 21. Í kjölfar albúmsins Onward undirbýr trommuleikarinn Scott McLemore útgáfu á fjórða albúminu sem hljóðritað var í Tékklandi. „Eins og áður vefur kvartettinn og gítararnir tveir myndrænan hljóðheim fullan bjartsýni og hlýju,“ segir í kynningu. Auk tónsmíða Scotts verða nokkrir áhrifavaldar eins og Paul Simon og Ornette Coleman hafðir með í dagskránni. 
  • Kristjana Stefáns & Svavar Knútur – LYST, Lystigarðinum kl. 20. 15 ára afmælistónleikar. „Auk þess að fagna „afmælisbarninu“ munu þau flytja flytja stórskemmtilega og fallega dúettadagskrá, pipraða með glettni, húmor og kæti og mögulega munu einhver ný og óvænt lög verða dregin fram úr erminni,“ segir í kynningu.
  • Spacestation – Græna hattinum, föstudag 26. júní kl. 21. „Það var bilað stuð þegar sveitin kom í fyrra og ætlar hún að endurtaka leikinn núna í sumar og vonast til að sjá sem flesta. Fyllum húsið kæru Akureyringar!“ segir í kynningu.
  • Una Torfa – Græna hattinum, sunnudag 28. júní kl. 21. „Una Torfa er lagasmiður og söngkona úr Vesturbænum sem semur lög á íslensku um ástir, höfnun, hjartasár og hamingju. Hún fangar nákvæmar tilfinningar og kemur þeim í orð, finnur lítil augnablik og hverfular hugmyndir og festir þær í textum,“ segir í kynningu.

Una Torfa verður á Græna hattinum á sunnudagskvöldið, ásamt hljómsveit.

Viðburðir

Listsýningar

Mars Þurý sýnir stafrænar teikningar í Kaktusi frá föstudegi til sunnudags.


Endilega hafðu samband á valur@akureyri.net ef að þú vilt koma þínum viðburði á listann. Hann þarf að vera opinn öllum.