Fara í efni
Menning

Tónaútgáfan – Þó líði ár og öld á Græna hattinum

Fjallað er ítarlega um Pálma Stefánsson, Tónabúðina og Tónaútgáfuna í blaðinu Tónlistarbærinn Akureyri, sem er hluti samnefndrar sýningar sem opnuð var í júní 2020 í Minjasafninu á Akureyri og stendur enn yfir.

Á tónleikunum Tónaútgáfan. Þó líði ár og öld á Græna hattinum annað kvöld, föstudaginn 2. febrúar, verður farið yfir sögu Tónaútgáfunnar í tali og tónum.

Pálmi Stefánsson stofnaði Tónabúðina á Akureyri árið 1966. Verslunin seldi hljóðfæri, hljómtæki og hljómplötur. Það reyndist erfitt að bjóða upp á íslenskar plötur í Tónabúðinni þar sem Sport og hljóðfæraverslun Akureyrar hafði gert einkasölusamninga við flesta íslenska útgefendur. Pálmi stofnaði því Tónaútgáfuna árið 1967 ásamt Jóni Ármannssyni. Saman ráku þeir Tónaútgáfuna í nokkur ár, en síðar keypti Pálmi hlut Jóns í fyrirtækinu.

Pálmi var á þessum tíma jafnframt hljómsveitarstjóri hljómsveitarinnar Póló, sem naut mikilla vinsælda, og fyrsta platan sem Tónaútgáfan gaf út var smáskífa með Póló og Bjarka.

Í kjölfarið fylgdu svo plötur með mörgum af vinsælustu tónlistarmönnum þjóðarinnar og má þar nefna Björgvin Halldórsson, Ragnar Bjarnason, Flowers, Ævintýri, Örvar Kristjánsson, Geirmund Valtýsson og Hljómsveit Ingimars Eydal. Árið 1970 gaf Tónaútgáfan út fyrstu íslensku safnplötuna, og bar hún nafnið Pop Festival ‘70. Tónaútgáfan gaf einnig út hina goðsagnakenndu plötu Lifun með hljómsveitinni Trúbrot árið 1971.

Um sönginn á tónleikunum annað kvöld sjá þau Magni Ásgeirsson, Maja Eir Kristinsdóttir Eir, Stefán Jakobsson, Stefán Elí og Summi Hvanndal. Hljómsveitina skipa Eyþór Ingi Jónsson á orgel og hljómborð, Haukur Pálmason á trommur, Kristján Edelstein á gítar, Magni Ásgeirs á gítar og Summi Hvanndal á bassa. Sögumaður er Þorsteinn G. Gunnarsson og hljóðmaður er Trausti Már Ingólfsson.

Tónleikar með sama nafni – Tónaútgáfan. Þó líði ár og öld – voru haldnir í Hofi á Akureyrarvöku 2022. Smellið hér til að sjá myndband frá  því eftirminnilega kvöldi.