Tólf tónlistaratriði á Grasrót í Hlöðunni
Tónlistarhátíðin Grasrót verður haldin i þriðja skiptið í Hlöðunni hjá Litla-Garði dagana 29.-30. maí, á morgun og laugardag. Þetta er tveggja daga hátíð sem einblínir á sjálfstæða tónlist hér í bænum. Fram kemur úrval af því besta sem akureyrska grasrótarsenan hefur upp á að bjóða ásamt góðum gestum. Sérstakir gestir verða SÓT, sem unnu nýlega þungarokkskeppni Wacken á Íslandi og spiluðu sína fyrstu tónleika á Grasrót 2024, og þungarokkssveitin Devine Defilement að sunnan en alls verður boðið upp á tólf tónlistaratriði á hátíðinni.
Forsprakkar hátíðarinnar eru þeir Ari Orrason, Daniel Alpi, Davíð Máni og Zophonias Tumi Guðmundsson. „Okkur hefur þótt mjög gaman og gefandi að skipuleggja þennan viðburð og miðasala hefur aldrei gengið betur. Við höfum selt rúmlega helming miða í gegnum miðasölu á netinu þannig að nú fer hver að verða síðastur að ná sér í helgarpassa (2.000 kr.) eða stakt kvöld (1.500 kr.). Þetta er einnig stærsta lineuppið sem við höfum haft að sinni með bönd eins og Devine Defilement og SÓT,“ segir Davíð Máni, einn skipuleggjenda. Hægt er að ná sér í miða gegnum skilaboð á Instagram-síðu Hljómbaðs eða gegnum tölvupóst: ariorrasoninfo@gmail.com.

Hugarró kom fram á Grasrót 2025 og verður aftur með í ár.
„Svo vil ég koma á framfæri að það er mjög mikilvægt fyrir okkur Akureyringa að styðja við svona viðburði, styðja við local hljómsveitirnar okkar. Þetta er framtíðin okkar og framtíð Grasrótar Akureyrar er afar björt,“ segir Davíð Máni ennfremur.
Á hátíðinni koma fram:
Chögma
Davíð Máni
Devine Defilement
Hugarró
Kölski
Melodí
Show Guilt
HRÆ
Sólför
SÓT
Unknown Fantasy
Þorsteinn Kári