Fara í efni
Menning

Töfrabækurnar á Möðruvöllum

Atvinnuleikhópurinn Umskiptingar sem starfræktur er á Akureyri frumsýnir barnasýninguna Töfrabækurnar í leikhúsinu á Möðruvöllum í Hörgárdal sunnudaginn 1. október.

Í tilkynningu leikhópsins segir að Töfrabækurnar séu brúðuleikhús þar sem unnið er með þjóðsögur. „Hugmyndin er að með tímanum verði hægt að velja um nokkrar bækur sem innihalda eina sögu hver. Áhorfendur velja þá sögu sem þau vilja heyra en þegar bókin opnast breytist hún í leikmynd fyrir söguna og þær persónur sem koma fram verða tvívíðar brúður sem stjórnað verður ofan frá. Tveir leikarar stjórna brúðum og sjá um allan leik og lifandi tónlistarflutning,“ segir meðal annars í tilkynningunni.

„Fyrsta sagan sem sögð verður í Töfrabókunum er sagan af Gýpu. Gýpa er með eindæmum matgráðug og mesta furða að hún hafi ekki verið búin að éta heimilisfólk út á gaddinn. Þegar matinn þrýtur étur hún askinn sinn, karl og kerlingu í kotinu og kúna Kreppilhyrnu. Síðan heldur hún af stað til að leita að meiri mat. Hver skyldi vera svo ólánsamur að verða á vegi hennar?“

Brúðuleikhús fullt af töfrum

Í tilkynningu leikhópsins er farið yfir aðdraganda og undirbúning þessarar sýningar. Þar segir:

„Þjóðsögur eru til í flestum löndum og þar er Ísland engin undantekning. Hugmyndin er að glæða þessar gömlu þjóðsögur nýju lífi svo þær gleymist ekki heldur geymist í minni barna. Í framtíðinni munum við leita fanga í fleiri löndum en til að byrja með er fókusinn á íslenskar þjóðsögur. Hugmyndin vaknaði fyrir nokkrum árum síðan þegar meðlimir hópsins veltu fyrir sér að auka aðgengi barna að leikhúsi. Þá var skoðaður möguleikinn á að búa til leikhússeríu fyrir börn sem væri hægt að keyra á lágmarksstyrkjum en hafa samt gæði og lágt miðaverð í forgrunni. Brúðuleikhúsið er fullt af töfrum og því var ákveðið að fara þá leið. Þá var ákveðið að hafa þjóðsögur sem grunn að öllum verkum og að það yrði fjölbreytt flóra frá mörgum löndum, enda Ísland orðið fjölmenningarland.“

Áhugaverðar aðferðir við efnisval

Aðferðir leikhópsins við efnisval fyrir brúður, leikmyndir og búninga eru áhugaverðar, en við gerð brúða, leikmyndar og búninga hefur hópurinn leitast við að nýta efni sem til eru fyrir í stað þess að kaupa nýtt. Brúðurnar og bókin sjálf eru gerð úr alls kyns umbúðum og efnisafgöngum sem þannig öðlast nýtt líf. Búningar eru meðal annars gerðir úr gömlum rúmfötum, gluggatjöldum og gömlum flíkum, en nytjamarkaður Hjálpræðishersins var leikhópnum innan handar með efni í búningana.

„Við vildum bara sýna að það er hægt að gera skemmtilegt leikhús án þess að kosta miklu efnislegu til en auðvitað liggur mikil vinna að baki bæði í hugmyndavinnu og gerð leikbrúða, leikmyndar og búninga“ segir Fanney Valsdóttir, framleiðandi sýningarinnar.

Sýningar næstu sex sunnudaga

Leikstjóri sýningarinnar er Jenný Lára Arnórsdóttir og leikarar eru Margrét Sverrisdóttir og Jónína Björt Gunnarsdóttir. Margrét sá jafnframt um gerð leikmyndar og brúðugerð. Sesselía Ólafsdóttir og Vilhjálmur B. Bragason eru höfundar tónlistar og framleiðandi er Fanney Valsdóttir, en hún sá jafnframt um gerð búninga. Verkefnið er styrkt af Uppbyggingarsjóði Norðurlands Eystra.

Sýningar verða í Leikhúsinu á Möðruvöllum í Hörgárdal á sunnudögum í október og fyrstu helgina í nóvember. Eftir sýningar verða kaffiveitingar og boðið upp á föndur þar sem meðal annars verður hægt að sjá hvernig hægt er að gera sína eigin útgáfu af Gýpu. Frumsýning fyrstu Töfrabókarinnar, sögunnar af Gýpu, verður sunnudaginn 1. október kl. 15:00 í Leikhúsinu á Möðruvöllum í Hörgárdal. Miðasala er á Tix.is.

Leikarar á frumsýningu: Jónína Björt Gunnarsdóttir og Margrét Sverrisdóttir
Leikstjóri: Jenný Lára Arnórsdóttir
Brúðu og leikmyndagerð: Margrét Sverrisdóttir
Höfundar tónlistar og texta: Sesselía Ólafsdóttir og Vilhjálmur B. Bragason
Myndataka: Sindri Swan
Framleiðandi og búningagerð: Fanney Valsdóttir