Fara í efni
Menning

Þröstur Leó tekur við karlaliði Þórs af Richi

Þröstur Leó Jóhannsson, til vinstri, í hlutverki þjálfara Þórs veturinn 2024 til 2025, og Richi González í leikhléi með karlaliði Þórs í vetur. Myndir: Skapti Hallgrímsson og Helgi Heiðar Jóhannesson.

Spánverjinn Ricardo Gonzáles Davila er hættur sem þjálfari meistaraflokks karla í körfuknattleik hjá Þór skv. heimildum akureyri.net, og Þröstur Leó Jóhannsson mun stjórna liðinu út keppnistímabilið.

Þröstur Leó lék með Þór í nokkur ár og þjálfaði liðið veturinn 2024 til 2025.

Þrátt fyrir að Richi, eins og Spánverjinn er kallaður, hætti með meistaraflokk starfar hann áfram fyrir körfuknattleiksdeildina sem þjálfari yngri flokka enda mun mikil ánægja með störf hans við uppbyggingu hjá félaginu.

Þórsarar eru í 10. sæti deildarinnar með þrjá sigra eftir 19 umferðir. Hamar er í sætinu fyrir neðan, einnig með þrjá sigra, og Fylkir í botnsætinu með tvo sigra. Þessi tvö lið eru einmitt andstæðingar Þórsara í tveimur næstu leikjum. 

VIÐBÓT

  • Körfuknattleiksdeild Þórs sendi frá sér fréttatilkynningu í hádeginu. Hún er svohljóðandi í heild:

Körfuknattleiksdeild Þórs hefur komist að samkomulagi við Ricardo Gonzáles Dávila um að hann hætti þjálfun meistarafokks karla. Richi mun áfram störfum sínum fyrir deildina í yngri flokkum. Deildin hefur náð samkomulagi við Þröst Leó Jóhannsson, sem er okkur kunnugur, til að taka við liðinu sem eftir lifir leiktíðarinnar.

Við viljum færa Richi innilegar þakkir fyrir hans framlag til meistaraflokks. Hann hefur unnið af heilindum og metnaði að uppbyggingu liðsins og lagt sitt af mörkum bæði innan vallar sem utan. Það er félaginu afar dýrmætt að Richi muni áfram starfa innan okkar raða og sinna þjálfun yngri flokka. Þannig nýtist reynsla hans og þekking áfram í uppbyggingarstarfi félagsins og styður við framtíðarsýn okkar um öflugt og samheldið körfuknattleikssamfélag.

Þröstur Léó kemur til starfa með mikla reynslu og skýra sýn. Stjórn og leikmenn bjóða hann hjartanlega velkominn til starfa og hlakka til samstarfsins.

Við leggjum áherslu á að þessi breyting er hluti af eðlilegri þróun í starfi félagsins og er gerð í góðu samráði og með gagnkvæmri virðingu allra aðila. Markmið okkar er áfram skýrt: að efla meistaraflokk karla, styðja við yngri flokka og halda áfram að byggja upp sterkt og metnaðarfullt starf innan félagsins.