Þrjú Akureyrarbönd á alþjóðlegri metalhátíð
Metalframtíð Akureyrar verður að teljast björt um þessar mundir, en héðan keppa þrjár metalhljómsveitir í alþjóðlegu keppninni Wacken Metal-battle í ár. Böndin sem um ræðir Sólför, Show Guilt og SÓT, en íslenska keppnin fer fram í IÐNÓ 24. apríl næstkomandi. Samskonar keppnir fara fram í 62 löndum, en möguleiki er á að fá að taka þátt í Wacken Open Air Festival, sem er risastór metalhátíð í Wacken í Þýskalandi um mánaðarmótin júlí-ágúst.

Hljómsveitirnar þrjár. Myndir af Facebook síðu Wacken Metal-battle Iceland.
Nýlega var umfjöllun um Sólför á akureyri.net, en hljómsveitina skipa þeir Ivan Mendez söngvari, Sigfús Jónsson bassaleikari, Bjarni Einarsson gítarleikari og trymbillinn Kęstutis Balčiūnas.
Show Guilt var stofnuð 2024, en hana skipa söngvarinn Guðbjörn Hólm Veigarsson, trommarinn Þorvaldur Yngvi Schiöth, gítarleikararnir Daníel Andri Eggertsson & Daniel Alpi og á bassa er Stefán Oddur Hrafnsson.
Hljómsveitin Sót er skipuð Akureyringum og Hólmurum, en hana skipa söngvarinn Aron Freyr Ívarsson, Daníel Hrafn Ingvarsson gítarleikari, trommuleikarinn Bjarmi Friðgeirsson, Ísleifur Jónsson gítarleikari og bassaleikarinn Ívar Leó Hauksson. Ísleifur og Ívar Leó eru frá Stykkishólmi.