Menning
Þórsarar leika í Mosfellsbæ í kvöld
27.10.2026 kl. 12:30
Hákon Ingi Halldórsson í dauðafæri gegn Stjörnunni í síðustu umferð Olísdeildarinnar. Mynd: Ármann Hinrik
Karlalið Þórs í handbolta mætir Afturelding á útivelli í kvöld í Olísdeildinni, efstu deild Íslandsmótsins. Þór vann Stjörnuna á heimavelli í síðustu umferð en Afturelding tapaði fyrir KA á Akureyri.
Þórsliðið er í sjöunda sæti deildarinnar með sex stig að loknum sjö umferðum. Afturelding er tveimur sætum ofar með níu stig. Á sunnudag tekur Þór svo á móti FH.
- Handbolti
Olísdeild karla, 8. umferð
Varmá í Mosfellsbæ kl. 18:30
Afturelding - Þór