Menning
„Það varst þú“ – Nýtt lag Óskars og Björgvins
21.04.2026 kl. 13:15
Félagarnir Óskar Pétursson og Björgvin Þ. Valdimarsson hafa gefið út nýtt lag sem heitir „Það varst þú“ – þetta er nýjasta lag Björgvins og hann samdi einnig textann; þar segist Björgvin fyrst og fremst fjalla um „þakklæti til þess fólks sem maður gengur með í gegnum lífið og þær minningar sem tengjast því.“
Óskar og Björgvin Þ. hafa unnið mikið saman í gegnum tíðina en á fyrsta diski Björgvins söng Óskar m.a. lögin Undir Dalanna sól, Kveðju heimanað og Mátt söngsins, auk lagsins Stúlkan mín sem Álftagerðisbræður sungu. Síðan gáfu þeir félagar út diskinn Allt sem ég er árið 2009 en á þeim diski var Óskar aðalsöngvari. Á diskinum sungu þrír gestasöngvarar m.a. Björgvin Halldórsson en hann og Óskar sungu saman titillag disksins.
Björgvin segir Óskar syngja lagið af sinni alkunnu snilld, enda sé hann með afbrigðum músíkalskur maður, en bakraddir syngur söngkonan Helga Margrét Clarke sem einnig er ættuð að norðan eins og margir vita.
Hægt er að hlusta á nýja lagið á Spotify og einnig að sjá myndband með laginu á Youtube.
Hlekkur á Spotify: https://open.spotify.com/track/3TEP5M0mtoS09nEHlfQpaO?si=d7f118f7c520473b
Hlekkur á Youtube: https://www.youtube.com/results?search_query=%C3%BEa%C3%B0+varst+%C3%BE%C3%BA