Fara í efni
Menning

„Það myndaðist óvænt hátíð!“ í Davíðshúsi

„Það myndaðist óvænt hátíð! Viðburður í tilefni fyrsta vetrardags varð fyrir tilviljun að þriggja daga ljóðaveislu í stofum Davíðshúss þar sem fram koma Sigmundur Ernir, Fríða Ísberg, Tómas Ævar og Þórður Sævar,“ segir í tilkynningu frá Minjasafninu á Akureyri. Hátíðin er í vikunni, frá fimmtudegi til laugardags.

„Öll eiga þau það sameiginlegt að vera með spáný verk. Sigmundur Ernir ríður á vaðið og fjallar um bók sína Eldhús ömmu Rún þar sem hann ferðast á tímavél minninganna til æskuslóða sinna á Akureyri.

Fríða Ísberg les upp úr skáldsögunni Merkingu. Fríða hefur áður gefið frá sér smásagnasafnið Kláða, sem tilnefnt var til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2020, og ljóðabækurnar Slitförin og Leðurjakkaveður.

Tómas Ævar les úr frumraun sinni, ljóðbókinni umframframleiðsla, sem fylgir leit ljóðmælanda að lausn undan óefni í sálarlífi sínu sem hann ber á borð þriggja kvenna.

Ljóðahátíðinni lýkur með Brunagaddi Þórðar Sævars, sem vonandi er ekki fyrirboði um komandi vetur þó viðburðurinn sé haldinn fyrsta vetrardag. Í ljóðabók sinni fjallar Þórður einmitt um fyrsta vetur sinn á Akureyri í 22 ár.

Hver veit nema hér sé komin til að vera ljóðahátíð sem gæti vaxið næstu árin út fyrir stofur Davíðshúss?

  • 21. október – Sigmundur Ernir kl. 20
  • 22. október – Fríða Ísberg og Tómas Ævar kl. 20
  • 23. október – Þórður Sævar kl. 15

Finna má viðburði fyrir hverja skáldastund á facebooksíðu Davíðshúss.

Af gefnu tilefni minnum við á að sætapláss er takmarkað í Davíðhúsi

Miðar seldir við innganginn meðan húsrúm leyfir – miðapantanir: davidshus@minjasafdnid.is /s: 4624162

Aðgangur aðeins 500 kr. á hvern viðburð en Safnakort Minjasafnsins gildir á viðburðinn og allar sýningar Minjasafnsins, Nonnahús, Leikfangahúsið og Davíðshús út árið. Viðburðurinn er styrktur af SSNE.“