Fara í efni
Menning

Teitur Magnússon og Mýtlarnir á Leyni

Tónlistarmaðurinn Teitur Magnússon heldur tónleika ásamt hljómsveitinni Mýt­lunum á Leyni í kvöld, laugardagskvöldið 21. nóvember. Tilefnið er ný vínylplata Teits, Askur, sem hann fagnar nú með tónleikaferð um landið.

Á tónleikunum fá lög af nýju plötunni að hljóma, en einnig má búast við vel völdum lögum frá ferli Teits og sérvöldum tökulögum í rokkaðri kantinum. Með Teiti á sviðinu verða þrír reyndir tónlistarmenn sem skipa Mýtlana: Birgir Ísleifur Gunnarsson úr Motion Boys, Orri Páll Dýrason úr Sigur Rós og Ingvi Rafn Björgvinsson úr Oyama.

Askur er fjórða sólóplata Teits frá því reggísveitin Ojba Rasta lagðist í dvala. Áður hefur hann sent frá sér plöturnar 27, Orna og 33. Á nýju plötunni heldur hann áfram að þróa sinn eigin tónheim þar sem þjóðlagatónlist, popp, rokk og tropicalia mætast, ásamt íslenskum textum sem sækja bæði í fortíð og nútíð. Upptökustjóri plötunnar var Hallberg Hallbergsson, sem meðal annars hefur starfað með Jakobínarínu og Brian Jonestown Massacre.

Í tilkynningu um tónleikana kemur fram að nokkur laga plötunnar hafi þegar vakið athygli, þar á meðal Gullauga, Askur og Fjöllin og fjarlægðin. Síðastnefnda lagið náði efsta sæti Vinsældalista Rásar 2.

Tónleikarnir hefjast kl. 21 og miðasala fer fram á Moment.