Sýnir teikningar af matnum fyrir og eftir

Sýning listakonunnar Aðalheiðar S. Eysteinsdóttur verður opnuð í Kaktus í dag, föstudaginn 27. júní. Sýningin ber heitið 'Um hádegisbil' og er í raun listræn útfærsla á rannsóknarniðurstöðum Aðalheiðar á sínu eigin innra rými. „Ég hef alltaf verið heilluð af fæðu og áhrifum matar á lífið,“ segir Aðalheiður í samtali við blaðamann Akureyri.net. Sýningin samanstendur af blýantsteikningum af hádegismatardiski listakonunnar annars vegar, og svo matnum þegar hann hefur farið í gegn um meltingarveginn hinsvegar.
„Á mánaðartímabili rannsakaði ég hvað ég borða um hádegisbil, og hvaða áhrif það hefur á líkamann og andlega líðan,“ segir Aðalheiður. „Ég tók mynd af matnum á þessum tíma, áður en ég borðaði hann, og 24 tímum síðar, tók ég mynd af því sem skilaði sér í salernið. Svo teiknaði ég myndir með blýanti, en þar sem það eru grunnþarfir sem eru til umfjöllunar, ákvað ég að nota grunnáhald myndlistarinnar.“
Teikningar Aðalheiðar, en sýningin samanstendur af 60 teikningum. 30 af mat og 30 af meltum mat. Mynd: aðsend
Matur og hollusta ofarlega í huga
„Ég er að þessu fyrst og fremst til þess að rýna í áhrif matarins, hvað er hollusta og holl fæða? Þetta er eitthvað sem við þurfum öll að gera, að borða, og ég hef oft fjallað um mat áður í list minni,“ segir Aðalheiður. „Árið 1993 setti ég til dæmis upp fyrstu einkasýninguna mína þar sem voru stór málverk af sjálfri mér í allskonar aðstæðum, þar sem ég var með epli. Í sýningarrýminu voru stórar körfur af rauðum eplum, sem gestir máttu gæða sér á. Þar með fengum við lyktina af eplunum, hljóðið þegar bitið er í þau og bragðið náttúrulega, með á sýninguna.“
Ég hef oft fjallað um umhverfið mitt, í þessu daglega lífi, og í þetta sinn er það mitt eigið innra umhverfi sem er til umfjöllunar
„Það myndast innileg stund á milli fólks, þegar við erum að borða,“ segir Aðalheiður. „Í gegnum tíðina hef ég haldið vel yfir 250 einkasýningar í 14 löndum, og nánast alltaf hefur matur komið eitthvað við sögu. Kannski sem matargjörningar, matarboð í kring um sýninguna eða ég að elda. Matargerð og matur teygir sig svo sannarlega yfir í listræna tjáningu, við reynum að gera matinn okkar fallegan og girnilegan. Sjónræn upplifun er líka risastór hluti af fínustu matargerðinni, eins og hjá Michelin kokkum.“
Opnar sýninguna með þáttökugjörningi
Það verður einmitt matargjörningur í tengslum við sýninguna 'Um hádegisbil', en sýningin opnar kl. 12.00 í Kaktus, á því að gestum verður boðið til hádegisverðar. Ég verð með hráefni og matvöru sem gestir geta nýtt til þess að búa sér til mat, tekið myndir og skoðað matargerðina út frá listænu sjónarmiði.
Tilgangurinn er að varpa ljósi á ferlið
Við getum öll verið sammála um að matur sé oft fallegur, og það er gaman að gera matinn sinn girnilegan. En á sýningunni sinni dregur Aðalheiður líka fram myndir af matnum þegar hann er meltur, í formi hægða, og þar eru sennilega færri sem sjá sjónræna fegurð. „Tilgangurinn er að varpa ljósi á ferlið sem á sér stað í okkar innra rými,“ segir Aðalheiður. „Hvar við setjum inn og hvað kemur út. Ég hef oft fjallað um umhverfið mitt, í þessu daglega lífi, og í þetta sinn er það mitt eigið innra umhverfi sem er til umfjöllunar.“
„Mér finnst að fólk sé farið að hugsa mun meira um hollustu og hvað það borðar, heldur en áður,“ segir Aðalheiður. „Sem er mjög gott. Sumir þurfa að vanda sig mjög mikið, varðandi hvað þeir borða, og ég er ein af þeim. Matur er risastór partur af mínu lífi.“
Sýning Aðalheiðar verður opin í dag, föstudag, á morgun, laugardaginn 28. júní og sunnudaginn 29. júní, frá 12-17. Hér má skoða viðburðinn á Facebook.